Mynd: Hörður Kristinsson
Safastör (Carex diandra)
Útbreiðsla
Mjög sjaldgæf á Íslandi, aðeins fundin á Suðurlandi milli Þjórsár og Jökulsár á Breiðamerkursandi og á einum stað á Snæfellsnesi. Allir fundarstaðirnir eru neðan 200 m hæðar (Hörður Kristinsson - floraislands.is).
Búsvæði
Mýrar og flóar.
Lýsing
Stórvaxin stör (30–60 sm) með langt, þétt, broddótt ax.
Blað
Myndar breiður. Neðri slíður grábrún til dökkbrún. Blöð grágræn, 1–2 mm breið. Strá grönn og sívöl neðst, köntuð ofar og svolítið ójöfn (Lid og Lid 2005).
Blóm
Axskipanin 2–4 sm, aflöng, gerð af fimm til tíu legglausum, öxum. Karlblóm efst í hverju axi. Axhlífar ljósbrúnar með breiðum himnukanti. Hulstur 2,5–3 mm langt, brúnt (Lid og Lid 2005).
Greining
Axskipan minnir á ígulstör og rjúpustör en er annars ólík.
Válisti
NT (tegund í yfirvofandi hættu)
Ísland |
Heimsválisti |
---|
NT |
NE |
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Safastör er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).
Válisti 1996: Safastör er ekki á válista.
Útbreiðsla: Safastör (Carex diandra)
Höfundur
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018
Var efnið hjálplegt?
Aftur upp