RANNSÓKNIR
RANNSÓKNIR
Meginhlutverk Náttúrufræðistofnunar Íslands er að stunda undirstöðurannsóknir í dýrafræði, grasafræði og jarðfræði landsins. Stofnunin annast skipulega heimildasöfnum um íslenska náttúru, skrásetur tilvist tegunda og kortleggur útbreiðslu þeirra. Rannsóknirnar ná til lands, sjávar og ferskvatns og eru niðurstöður varðveittar í gagnasöfnum.
Í vísindasöfnum Náttúrufræðistofnunar Íslands eru varðveitt eintök og sýni af tegundum lífvera, steingervingum, seti, gjósku, borkjörnum, steindum og bergi. Um er að ræða fræðileg söfn sem eru mikilvæg undirstaða í rannsóknum á náttúru landsins en fræðimenn nota þau til samanburðar á eintökum og til frekari rannsókna. Vísindasöfnin endurspegla breytileika náttúrunnar, ásamt sögu lands og lífs.
Vísindasöfnin skiptast í þrjú meginsöfn: dýrasafn, plöntu- og sveppasafn og jarðfræðisöfn. Safneinsök eru stundum lánuð innlendum og erlendum fræðimönnum vegna rannsókna. Að auki eru náttúrugripir lánaðir tímabundið á sýningar og til fræðslu á vegum opinberra stofnana eða á viðurkennd sýningarsöfn. Reglur um gripalán.
Var efnið hjálplegt? Aftur upp
Takk fyrir!