Þú ert ljós lífs míns!
Á morgun, föstudaginn 8. febrúar, verður Safnanótt Vetrarhátíðar í Reykjavík haldin hátíðleg. Í ár er almennt þema Safnanætur ljós og því mun Náttúrufræðistofnun Íslands nota tækifærið og fjalla um ljóstillífun og þann þátt sem hún hefur spilað í uppruna og framvindu lífs.
Ýmislegt verður í boði hjá Náttúrufræðistofnun á Safnanótt, bæði fyrir börn og fullorðna. Fyrirlestrar verða haldnir í Möguleikhúsinu og margt verður að gerast í Náttúrugripasafninu við Hverfisgötu þar sem Náttúrufræðistofnun kynnir fyrir gestum og gangandi mikilvægi ljóss fyrir allt líf á jörðinni. Á Hlemmi stendur yfir örsýning um rjúpuna. (Sjá dagskrá hér fyrir neðan.)
Safnastrætó
Á Safnanótt er ókeypis í strætó sem stoppar á Hlemmi á 20 mínútna fresti kl. 45–05–25.
Safnanæturleikurinn
Aftur verður sameiginlegur leikur á Safnanótt og að þessu sinni er ferð til London í vinning. Hægt verður að fá spjaldið sitt stimplað í sýningarsölunum hjá Náttúrufræðistofnun.
Dagskrá Náttúrufræðistofnunar Íslands á Safnanótt
8. febrúar 2008
kl. 19:00-01:00
Rjúpan og árstíðirnar
Biðskýli Strætó á Hlemmi
Örsýning um rjúpuna og árstíðirnar
Náttúrugripasafnið
kl. 19:00-01:00
Hlemmi 3 (gengið inn frá Hverfisgötu)
Leiðsögn og umræður í sýningarsölum safnsins.
Ýmislegt í boði fyrir börnin
Þú ert ljós lífs míns
kl. 19:30, 21:30
Möguleikhúsið, Hlemmi
Stuttir fyrirlestrar og umræður:
Dr. Borgþór Magnússon
forstöðumaður vistfræðideildar NÍ:
Kviknar líf í Surtsey
Gróa Valgerður Ingimundardóttir
líffræðingur NÍ:
Náttúran nýtir sólarorku
Surtsey, þróun lífs
kl. 20:00-21:30
Möguleikhúsið, Hlemmi
Stutt myndskeið með texta um
þróun plantna og lífvera í Surtsey