Hrafnaþing: Rannsóknir á æðarfuglum í Breiðafjarðareyjum
16.10.2017
![Æðarfuglamerkingar í Helgaskeri í Rifgirðingum Æðarfuglamerkingar í Helgaskeri í Rifgirðingum](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/jej-aedarfugl_merkingar.jpg?itok=YaxPEvCO)
Við merkingar á æðarfuglum í Helgaskeri í Rifgirðingum, Breiðafirði.
Hrafnaþing Náttúrufræðistofnunar Íslands verður haldið miðvikudaginn, 18. október kl. 15:15–16:00. Jón Einar Jónsson forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Snæfellsnesi flytur erindið „Merkingar á æðarkollum í Breiðafjarðareyjum“.
Í fyrirlestrinum verður fjallað um rannsókn á æðarfuglum sem hófst í Breiðafjarðareyjum árið 2015.
Hrafnaþing er haldið í húsakynnum Náttúrufræðistofnunar að Urriðaholtsstræti 6–8 í Garðabæ, í Krummasölum á 3. hæð.
Allir velkomnir!