Hvers á birkið að gjalda?
![Lirfa birkiþélu (Fenusella nana) inni í laufblaði hengibjargar í garði á Akureyri í ágúst 2017. Lirfa birkiþélu (Fenusella nana) inni í laufblaði hengibjargar í garði á Akureyri í ágúst 2017.](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/23-08-201711.jpg?itok=VkS2wdO3)
Lirfa birkiþélu (Scolioneura betuleti) inni í laublaði hengibjarkar í garði á Akureyri 22. ágúst 2017.
Ný meinsemd á birki hefur verið staðfest og er hún ekki til fagnaðar. Um er að ræða tegund blaðvespu sem hagar sér ámóta og birkikemban alkunna og holar innan birkilaufin. Þó er ekki um samkeppni þessara tveggja meinsemda að ræða, því þegar birkikemban hefur lokið sér af fyrrihluta sumars tekur blaðvespan við og leggur undir sig nýju laufin sem vaxa í kjölfar undangengins skaða.
Um er að ræða tegund sem nefnd hefur verið birkiþéla (Scolioneura betuleti). Hún er þekktur skaðvaldur á birkitegundum í Evrópu. Líkast til hefur blaðvespa þessi borist til landsins á síðustu árum. Hún gæti þó hafa dulist hér í nokkurn tíma því ummerkin á birkinu eru áþekk ummerkjum eftir atgang birkikembunnar, þ.e. sölnuð laufblöð sem lirfur í uppvexti hafa holað að innan. Í sumar hefur tegundin verið staðfest á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Þess má vænta að birkið kunni að líða fyrir þessar auknu álögur. Til þessa hafa trén náð að bæta skaðann sem birkikemban hefur valdið snemmsumars en nú tekur birkiþélan við keflinu og leggst á nýju blöðin síðsumar.
Gera má ráð fyrir að þessi nýi landnemi hafi borist til landsins með óvarlegum innflutningi trjáa. Er þetta gott dæmi um þá hættu sem slíkur innflutningur getur haft í för með sér fyrir íslensk vistkerfi.
Ítarlegan fróðleik um birkiþélu má lesa á pödduvef Náttúrufræðistofnunar.