Hrafnaþing: Jarðvegsrof og gróðurbreytingar á afrétti Hrunamanna
13.02.2017
![Sjálfgræðsla á beittu landi við Heygil á Hrunamannaafrétti 2016 Sjálfgræðsla á beittu landi við Heygil á Hrunamannaafrétti 2016](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/shm_heygill_hrunamannaafretti_2016.jpg?itok=HRoSTg8K)
Sjálfgræðsla á beittu landi við Heygil á Hrunamannaafrétti 2016
Hrafnaþing Náttúrufræðistofnunar Íslands verður haldið miðvikudaginn, 15. febrúar kl. 15:15–16:00. Sigurður H. Magnússon gróðurvistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands flytur erindið „Jarðvegsrof og gróðurbreytingar á afrétti Hrunamanna“.
Í erindinu verður fjallað um sögu jarðvegseyðingar í Hrunamannaafrétti. Greint verður frá niðurstöðum rannsókna sem staðið hafa frá 1981 á landnámi og framvindu gróðurs við Heygil á suðvesturhluta afréttarins og sýnd dæmi um helstu gróðurbreytingar.
Hrafnaþing er haldið í húsakynnum Náttúrufræðistofnunar að Urriðaholtsstræti 6–8 í Garðabæ, í Krummasölum á 3. hæð.