Útbreiðsla
Rauðbrystingur er hánorrænn varpfugl og skiptist í nokkra vel aðgreinda stofna.
Stofn
Stærsti stofn raubrystings, deilitegundin C.c. islandica, fer hér um vor og haust á leið til og frá varpstöðvum í NA-Kanada og á Grænlandi og vetrarstöðvum í Evrópu, alls um 270.000 fuglar (sjá kort). Annar hluti þessa stofns, ríflega 20%, fer um N-Noreg (Guðmundur A. Guðmundsson og Arnþór Garðarsson 1993) en eitthvað af þeim fuglum fer einnig um Ísland (Wilson 2013).
Válisti
LC (ekki í hættu)
Ísland |
Evrópuválisti |
Heimsválisti |
---|
LC |
LC |
LC |
Forsendur flokkunar
Kynslóðalengd (IUCN): 6,8 ár
Tímabil sem mat miðast við (3 kynslóðir):
Sá stofn rauðbrystinga sem fer hér um er mjög stór og talinn stöðugur (Birdlife International 2015). Því er þessi tegundi ekki talinn í hættu (LC) hér á landi.
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2000: Rauðbrystingur var ekki í hættu (LC).
Staða á heimsvísu
Rauðbrystingur er skráður sem tegund í yfirvofandi hættu á heimsválista (NT; BirdLife International 2015) þar sem flestir stofnar hafa dregist saman. Hann er hins vegar ekki á evrópskum válista þar sem ekki er vitað til þess að deilitegundinni islandica hafi fækkað umtalsvert.
Verndun
Rauðbrystingur er friðaður samkvæmt lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.
Mikilvæg svæði
Alls eru a.m.k. átta svæði flokkuð sem alþjóðlega mikilvægir viðkomustaðir rauðbrystings hér á landi og um 80% fuglanna koma hér við á alþjóðlega mikilvægum fuglasvæðum (sjá töflu).
IBA viðmið – IBA criteria:
A4 i: Kanada/Grænland/Evrópa/V- og S-Afríka (vetrarstofn/winter c. 1990) = 8.500 fuglar/birds (Wetlands International 2016)
B1 i: NA-Kanada/Grænland/Ísland/NV-Evrópa (vetrarstofn/winter c. 1990) = 3.500 fuglar/birds (Wetlands International 2016)
Wetlands International 2016. Waterbird Population Estimates. http://wpe.wetlands.org/search[skoðað 26. nóvember 2016].
Töflur
Mikilvægt viðkomusvæði rauðbrystings að vori – Important staging areas of Calidris canutus in spring in Iceland.*
Svæði Area |
Svæðisnúmer Area code |
Árstími Season |
Fjöldi (fuglar) Number (birds) |
Ár Year |
% af íslenskum stofni % of Icelandic popul. |
Alþjóðlegt mikilvægi International importance |
---|
Hvalfjörður |
FG-V_6 |
P |
18.512 |
1990 |
5,3 |
A4i, B1i, B2 |
Grunnafjörður1 |
FG-V_8 |
P |
3.540 |
2008 |
1,0 |
B1i, B2 |
Borgarfjörður–Löngufjörur |
FG-V_10 |
P |
22.180 |
1990 |
6,3 |
A4i, B1i, B2 |
Breiðafjörður |
FG-V_11 |
P |
170.000 |
1990 |
48,6 |
A4i, B1i, B2 |
Tjörnes2 |
FG-N_3 |
P |
5.225 |
2008 |
1,5 |
B1i, B2 |
Melrakkaslétta |
FG-N_4 |
P |
7.300 |
1990 |
2,1 |
B1i, B2 |
Stokkseyri–Eyrarbakki |
FG-S_1 |
P |
7.600 |
1990 |
2,2 |
B1i, B2 |
Selvogur |
FG-S_2 |
P |
5.100 |
1990 |
1,5 |
B1i, B2 |
Alls–Total |
|
|
239.457 |
|
68,4 |
|
*byggt á Arnþór Garðarsson og Guðmundur A. Guðmundsson 1991, 1993. 1Böðvar Þórisson o.fl. 2008 2Þorkell L. Þórarinsson og Aðalsteinn Ö. Snæþórsson 2008 |
English summary
Calidris canutus is a common passage migrant in Iceland with 270,000 birds estimated in spring 1990. Eight IBAs are designated for this species, holding 68% of the birds.
Icelandic Red list 2018: Least concern (LC) as in 2000.
Heimildir
Arnþór Garðarsson og Guðmundur A. Guðmundsson 1991. Yfirlit um gildi einstakra fjörusvæða fyrir vaðfugla. Óbirt skýrsla.
Birdlife International 2015. European red list of birds. Luxembourg: Official publication of the European Communities. http://datazone.birdlife.org/userfiles/file/Species/erlob/EuropeanRedListOfBirds_June2015.pdf[skoðað 20.10.2016].
Böðvar Þórisson, Cristian Gallo og Þorleifur Eiríksson 2008. Fuglatalningar í Grunnafirði 2008. Náttúrustofa Vestfjarða, NV nr. 17-08. Bolungarvík: Náttúrustofa Vestfjarða.
Guðmundur A. Guðmundsson og Arnþór Garðarsson 1993. Numbers, geographic distribution and habitat utilization of waders (Charadrii) in spring on the shores of Iceland. Ecography 16: 82–93.
Wetlands International 2016. Waterbird Population Estimates. http://wpe.wetlands.org/search [skoðað 26. nóvember 2016].
Wilson, J. 2013. Rauðbrystingar merktir í N-Noregi skipta um farleið. Bliki 32: 34–36.
Þorkell Lindberg Þórarinsson og Aðalsteinn Örn Snæþórsson 2008. Farfuglar í fjörum í nágrenni Bakka á Tjörnesi að vori. Náttúrustofa Norðausturlands, NNA-08004. Húsavík: Náttúrustofa Norðausturlands.
Höfundur
Kristinn Haukur Skarphéðinsson maí 2017, október 2018
Var efnið hjálplegt?
Aftur upp