Stormmáfur (Larus canus)

Stormmáfur (Larus canus)
Mynd: Daníel Bergmann

Stormmáfur (Larus canus).

Stormmáfur, ungfugl (Larus canus)
Mynd: Daníel Bergmann

Stormmáfur, ungfugl (Larus canus).

Útbreiðsla

Stormmáfur verpur víða á norðurhveli jarðar. Hann nam hér land um miðja síðustu öld og er algengastur við Eyjafjörð þar sem honum fjölgaði hratt fram yfir 2000. Stormmáfur er að mestu farfugl en einhver hundruð fugla sjást hér yfirleitt í vetrarfuglatalningum Náttúrufræðistofnunar.

Stofn

Íslenski stofninn var metinn 700 pör upp úr árinu 2000, þar af tæplega 500 pör í Eyjafirði (Ævar Petersen og Sverrir Thorstensen 2004). Hann virðist hafa staðið í stað næstu árin en hafði fjölgað í 660 pör í Eyjafirði árið 2010 (Sverrir Thorstensen og Ævar Petersen 2013). Miðað við brotakennda þekkingu á varpi stormmáfa í öðrum landshlutum er heildarstofninn nú varlega áætlaður um 800−1.000 pör.

Válisti

LC (ekki í hættu)

Ísland Evrópuválisti Heimsválisti
LC LC LC

Forsendur flokkunar

Kynslóðalengd (IUCN): 9,8 ár
Tímabil sem mat miðast við (3 kynslóðir): 1989–2018

Stormmáfi hefur fjölgað og er því ekki lengur á válista enda kominn yfir þau mörk sem fyrri flokkun í Válista 2000 miðaðist við (<1000 kynþroska fuglar).

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2000: Stormmáfur var flokkaður sem tegund í yfirvofandi hættu (LR, nú NT).

Verndun

Stormmáfur er friðaður samkvæmt lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.

Mikilvæg svæði

Engar stormmáfsbyggðir hér teljast alþjóðlega mikilvægar.

IBA viðmið – IBA criteria:

A4 i: Evrópa = 10.000 pör/pairs (Wetlands 2016)

B1 i: NV- og Mið-Evrópa/Atlantshaf/Miðjarðarhaf = 6.667 pör/pairs (Wetlands 2016)

English summary

Larus canus colonized Iceland in the mid-20th century and the population is probably 800−1,000 pairs. No areas in Iceland meet IBA criteria for this species.

Icelandic Red list 2018: Least concern (LC), downlisted from NT in 2000.


Heimildir

Sverrir Thorstensen og Ævar Petersen 2013. Enn fjölgar stormmáfum í Eyjafirði. Náttúrufræðingurinn 83:159–166.

Ævar Petersen og Sverrir Thorstensen 2004. Vöktun stormmáfsstofnsins í Eyjafirði 1980–2000. Náttúrufræðingurinn 72 (3–4): 144–154.

Wetlands International 2016. Waterbird Population Estimates. http://wpe.wetlands.org/search [skoðað 26. nóvember 2016].

Höfundur

Var efnið hjálplegt? Aftur upp

Aftur upp

Takk fyrir!

Hvað má betur fara?

  • Fela
  • |