Spendýr

Refir og selir hafa mikið aðdráttarafl á ferðmenn sem sækjast eftir að komast í návígi við dýrin til að fylgjast með þeim og ljósmynda. Þetta getur haft áhrif á viðkomu tegundanna og því mikilvægt að vakta þær á viðkvæmum svæðum.

Refir

Refur, eða melrakki, er eina upprunalega spendýrið hér landi. Hann er útbreiddur víða umhverfis norðurheimskautið en sjaldséður í Skandinavíu. Tegundin er ekki talin í útrýmingarhættu á heimsvísu en er talin í bráðri hættu í Evrópu. Vegna þess hversu fáliðuð tegundin er í Skandinavíu þá ber Ísland ábyrgð á yfir 90% stofnsins á Norðurlöndunum. Refir eru friðaðir á Íslandi.

Almennt eru refir styggir en á sumum svæðum hefur umferð við refagreni aukist stórlega á undanförnum árum, sérstaklega vegna aukins áhuga ferðamanna á refum og yrðlingum og myndatakna við greni. Mælingar hafa sýnt að því lengur sem fólk dvelur við greni því sjaldnar er yrðlingum sinnt, hvað varðar fæðugjöf og eðlilegt fjölskyldulíf. Afföll yrðlinga eru há þar sem truflun er mikil.

Fylgst með refum á Hornströndum
Mynd: Ester Rut Unnsteinsdóttir

Fylgst með refum og ferðamönnum á Hornströndum.

Vöktun á grenjatíma

Vöktun refagrenja með fjarsjám veldur lítilli truflun og er notast við þá aðferð á grenjatíma.Fylgst er með grenjum í fimm daga, tólf klukkustundir í senn, meðan læður eru mjólkandi. Mældur er fjöldi skipta sem foreldri kemur á greni með eða án fæðu og fæðutegundir eru skráðar eins nákvæmlega og hægt er. Einnig er mældur dvalartími hvors foreldris við grenið og tími sem yrðlingar eru úti við án foreldris. Samhliða þessu er fylgst með fjölda ferðamanna og hversu lengi þeir dvelja við greni. Auk fjarsjáa er notast við handsjónauka, fjarlægðarmæla og myndavélar.

Selir

Landselur og útselur halda sig við Íslandsstrendur allt árið um kring en báðar tegundir eru á válista spendýra. Landselur er algengasta selategund á Íslandi en hann er metinn sem tegund í bráðri hættu. Útselur er metinn sem tegund í nokkurri hættu en tegundin er algeng á kaldtempruðum svæðum um norðanvert Atlantshaf. Tegundin hefur sést í öllum landsfjórðungum hér á landi.

Vöktun sela

Talningar á selum á landi er best þekkta leiðin til að fá vísbendingar um breytingar á fjölda sela milli ára. Hafrannsóknastofnun og Selasetur Íslands hafa vaktað seli til fjölda ára og eru þau sundurliðuð eftir látrum og árum. Selasetur Íslands hefur stundað rannsóknir á áhrifum ferðamanna og er aðferðafræðin og reynsla nýtt til að útfæra verkefnið á skilgreindum vöktunarsvæðum um allt land.

Umferð ferðamanna við selalátur og vinsæla hvíldarstaði sela hefur margfaldast á síðustu árum og er líkleg til að valda neikvæðum áhrifum á seli, sérstaklega landsel sem er í bráðri hættu. Talið er í látrum sem eru þekktir viðkomustaðir ferðamanna. Því má fá upplýsingar um selina og álagsvaldinn á sama tíma.

Selatalning á Ytri-Tungu
Mynd: Róbert A. Stefánsson

Selatalning á Ytri-Tungu.

Heimildir

Ester Rut Unnsteinsdóttir. Refir á Hornströndum: áfangaskýrsla um vöktun árið 2019. Náttúrufræðistofnun Íslands, NÍ-20001. Garðabær: Náttúrufræðistofnun Íslands. [skoðað 31.5.2021]

Faustini Aquino, J., G.L. Burns og S.M. Granquist 2021. A responsible framework for managing wildlife watching tourism: The case of seal watching in Iceland. Ocean & Coastal Management 210. https://doi.org/10.1016/j.ocecoaman.2021.105670.

Granquist, S.M. og H. Sigurjónsdóttir 2014. The effect of land based seal watching tourism on the haulout behaviour of harbour seals (Phoca vitulina) in Iceland. Applied Animal Behavour Science 156: 85–93. DOI:10.1016/j.applanim.2014.04.004

Gunnhildur Ingibjörg Georgsdóttir, Erlingur Hauksson, Guðmundur Guðmundsson og Ester Rut Unnsteinsdóttir 2018. Selalátur við strendur Íslands. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 56. Garðabær: Náttúrufræðistofnun Íslands. [skoðað 31.5.2021]

Menja von Schmalensee og Róbert A. Stefánsson 2020. Vöktun á áhrifum ferðamanna á seli við Ytri Tungu á Snæfellsnesi. Hluti af verkefninu „ Vöktun náttúruverndarsvæða“. Óbirt frumskýrsla.

Náttúrufræðistofnun Íslands 2018. Landselur (Phoca vitulina). [skoðað 31.5.2021]

Náttúrufræðistofnun Íslands 2018. Melrakki (Vulpes lagopus). [skoðað 31.5.2021]

Náttúrufræðistofnun Íslands 2018. Útselur (Halichoerus grypus). [skoðað 31.5.2021]

Náttúrufræðistofnun Íslands 2018. Válisti spendýra. [skoðað 31.5.2021]

Var efnið hjálplegt? Aftur upp

Aftur upp

Takk fyrir!

Hvað má betur fara?

  • Fela
  • |