Vatnajökulsþjóðgarður
Vatnajökulsþjóðgarður
Svæðið er tilnefnt vegna vistgerða á landi, ferskvatnsvistgerða, fugla og sela.
Vatnajökulsþjóðgarður
Mörk
Mörk svæðisins eru þau sömu og Vatnajökulsþjóðgarðs, ná yfir allan jökulinn og stór svæði umhverfis.
Stærð
14702,6 km2
Hlutfall lands: 98%
Hlutfall fjöru: <1%
Hlutfall sjávar: <1%
Hlutfall fersks vatns: 1%
Svæðislýsing
Mikið af jökullausa landinu eru auðnir en við norðausturjaðarinn eru mikil votlendi, þar á meðal Eyjabakkar og Vesturöræfi, sitthvoru megin Snæfells. Eins eru gróðurvinjar allvíða með talsverðu fuglalífi. Landselur liggur í látrum við ósa Fjallsár og Breiðár. Ferðamennska er stunduð víða sem og veiðar á fuglum og hreindýrum.
Forsendur fyrir vali
Í Vonarskarði er litríkt jarðhitasvæði. Jarðhitavistgerðin fjallahveravist einkennir svæðið en einnig er hveraleirsvist til staðar. Fjöldi jarðhitalækja er á svæðinu og er fjölbreytni þeirra með tilliti til efna- og eðlisþátta mikil sem endurspeglast í lífríki þeirra. Töluvert er af yfirborðsvatni, sem er sjaldgæft á háhitasvæðum. Við Gæsavötn eru kaldar lindir. Fjölbreytileiki smádýra í þeim er mikill og greinilegt að frumframleiðni er mikil. Áhugavert er að lindirnar koma upp bæði undan hrauninu og ofan á því.
Mikið heiðagæsavarp er í sumum votlendum og gróðurvinjum, einkum umhverfis Snæfell og telst svæðið í heild alþjóðlega mikilvægt fyrir heiðagæsir, bæði sem varpland og fyrir geldfugla í fjaðrafelli, þá aðallega á Eyjabökkum. Í Vatnajökulsþjóðgarði eru þekkt 15 fálkaóðul og á Breiðamerkursandi er aðalhelsingjavarp landsins og mikið skúmsvarp til skamms tíma, hvorutveggja alþjóðlega mikilvægt.
Við ósa Fjallsár og Breiðár eru umfangsmikil landselslátur þar sem hafa verið yfir 1600 selir og allt að 49,5% allra landsela Suðurlands. Landsel á svæðinu hefur fækkað um 78,3% frá árinu 1980.
Vistgerðir
Vistgerð | Km2 | % af heildarflatarmáli | |
---|---|---|---|
Land | Fjallahveravist | 0,05 | 21 |
Land | Hveraleirsvist | 0,04 | 9 |
Ferskvatn | Jarðhitalækir | ||
Ferskvatn | Kaldar lindir | <0,01 | 1 |
Fuglar
Tegund | Árstími | Fjöldi (pör) | Ár | % af íslenskum stofni |
---|---|---|---|---|
Heiðagæs | Varp | 2.000 | 2010 | 2 |
Helsingi | Varp | *um 1.000 | 2107 | c. 5 |
Fálki | Varp | **15 | 2016 | 2 |
*Varp á Breiðamerkursandi innan þjóðgarðs eftir stækkun 2017 | ||||
**Þekkt óðul |
Sjá einnig ítarlegri umfjöllun um fuglasvæðið Vatnajökulsþjóðgarður.
Selir
Hér er um sömu tölur að ræða og birtar eru fyrir tillögusvæðið Fjallsá-Fagurhólsmýri en selalátur eru á síbreytilegum aurum og ósum Fjallsár sem liggur á mörkum svæðanna tveggja.
Tegund | Lægsti fjöldi* | Hæsti fjöldi* | Hæsta % af Suðurlandsstofni |
Hæsta % af íslenskum stofni |
Núverandi % af íslenskum stofni |
---|---|---|---|---|---|
Landselur | 65 (1998) | 1.686 (1980) | 49,5 (2016) | 11,7 (1980) | 8,8 (2018) |
*Árin 1980–2018 |
Ógnir
Ferðamennska, uppbygging ferðaþjónustu í jaðri þjóðgarðs, ágengar tegundir og vatnsaflsvirkjanir.
Aðgerðir til verndar
Svæðið var friðlýst sem þjóðgarður árið 2008 og hefur verið stækkað síðan í nokkrum áföngum. Styrkja þarf vernd vistgerða og búsvæða í stjórnunar- og verndaráætlun þjóðgarðsins. Brýnt er að tryggja vernd sela í látrum og nærliggjandi grunnsævi þar sem fæðuöflun fer fram.
Núverandi vernd
Friðlýst svæði | Flokkur friðlýsingar |
---|---|
Vatnajökulsþjóðgarður | Þjóðgarður |
Aðrar náttúruminjar | Númer |
---|---|
Gæsavötn við Gæsahnjúk | 517 |
Kverkfjöll og Krepputunga | 613 |
Fagridalur og Grágæsadalur á Brúaröræfum | 614 |
Snæfell, Vesturöræfi og Hafrahvammagljúfur | 615 |
Eyjabakkar | 616 |
Umhverfi Hoffellsjökuls | 631 |
Skálafellsjökull og fjalllendi í Suðursveit | 632 |
Steinadalur og Staðarfjall | 633 |
Breiðamerkursandur, Jökulsárlón, jökulöldur við Kvíárjökul og Eystrihvammur | 635 |
Heinabergsfjöll | 654 |
Núpsstaður, Núpsstaðarskógar og Grænalón | 701 |
Tungnafellsjökull og Nýidalur (Jökuldalur) | 702 |
Eldgjá | 706 |
Grænifjallgarður | 760 |
Kortasjá
Vatnajökulsþjóðgarður í kortasjá
Útgáfudagsetning
5. apríl 2018, uppfært 26. maí 2020, viðbótartillögur um seli gefnar út 3. desember 2020.