Hveraleirsvist
Hveraleirsvist
L12.4
Eunis-flokkun
Nýr flokkur, tillaga. H6.151 Geothermal bare grounds.
Hveraleirsvist
![Hveraleirsvist Hveraleirsvist](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/hveraleirsvist-img_2230.jpg?itok=tWBXYHRI)
Hveraleirsvist í Austur-Reykjadölum við Torfajökul í Rangárvallasýslu þar sem tegundir eru fáar og vaxa á stangli. Dæmi um æðplöntutegundir eru fjallapuntur, grasvíðir og blávingull. Jarðvegshiti er 19°C. – Geothermal bare grounds in southern highlands.
![Hveraleirsvist Hveraleirsvist](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/hveraleirsvist-hr-3a.jpg?itok=xNJUeMVf)
Hveraleirsvist við Hverarönd við Kröflu í Skútustaðahreppi, SuðurÞingeyjarsýslu. Útfellingar eru á sandorpnu hrauni þar sem gróður er lítill sem enginn. Jarðvegshiti er 15°C. – Geothermal bare grounds in northeastern Iceland.
Lýsing
Nokkuð fjölbreytt vistgerð við hveri, gufuaugu eða heitar sytrur. Hún einkennist af gróðursnauðu yfirborði sem er ýmist leir, hverahrúður, vikur eða hraun en getur einnig haft yfirbragð mels. Útfellingar eru víða og brennisteinsþúfur koma fyrir. Yfirborð vistgerðarinnar er oft á tíðum litríkt þar sem ljósir og rauðir litir eru áberandi. Yfirborðið er allt frá því að vera mjög gljúpt og yfir í mjög hart og þétt. Gróður er blettóttur og tegundasamsetning ræðst af hita og raka í jarðvegi.
Plöntur
Hveraleirsvist er tegundafátækasta jarðhitavistgerðin og er þekja gróðurs mjög lítil. Algengast er að grös séu mest áberandi og eru skriðlíngresi (Agrostis stolonifera) og blávingull (Festuca vivipara) algengust þeirra. Blóðberg (Thymus praecox subsp. arcticus) vex þar sem þurrast er en laugasef þar sem deigt er. Jarðhitategundirnar grámygla (Gnaphalium uliginosum) og naðurtunga (Ophioglossum azoricum) finnast og hitakæru tegundirnar blákolla (Prunella vulgaris), græðisúra (Plantago major) og lækjasef (Juncus bufonius). Mosar eru lítt áberandi í hveraleirnum en helst finnast laugaslyðra (Gymnocolea inflata), fjaðurgambri (Racomitrium elongatum) og laugavendill (Ditrichum lineare). Fléttur eru fáar og þá aðallega vikurbreyskja (Stereocaulon arcticum) og engjaskóf (Peltigera canina).
Jarðvegur
Jarðvegur er mikið ummyndaður vegna hita.
Jarðhiti á 10 cm dýpi
Á bilinu 15–85°C; meðaltal 40°C (n=43).
Útbreiðsla
Vistgerðin finnst á langflestum háhitasvæðum landsins.
Fuglar
Nánast ekkert fuglalíf.
Verndargildi
Hátt. Vistgerðin er á lista Bernarsamningsins frá 2014 yfir vistgerðir sem þarfnast verndar.
![Hveraleirsvist Hveraleirsvist](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/kort_l12.4_hveraleirsvist.jpg?itok=83pz3x9w)
Hveraleirsvist fannst í 31% reita þar sem jarðhitavistgerðir voru rannsakaðar. Flatarmál hennar reiknast um 50 km2, óvissa mikil. – The habitat type is found within 31% of all grid squares investigated. Its total area is estimated 50 km2.
Jarðhitategundir æðplantna – Geothermal vascular plant species within the habitat type | |
---|---|
Grámygla | Gnaphalium uliginosum |
Naðurtunga | Ophioglossum azoricum |
![Gróðurþekja, tegundafjöldi, raki, ríkjandi tegundir og fleiri tölulegar upplýsingar í hveraleirsvist Gróðurþekja, tegundafjöldi, raki, ríkjandi tegundir og fleiri tölulegar upplýsingar í hveraleirsvist](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/graf_l12.4_hveraleirsvist_0.jpg?itok=zbtMTgGW)
Fjöldi skráðra æðplantna, mosa og fléttna í vistgerðinni. – Total number of vascular plants (Æðplöntur), bryophytes (Mosar) and lichen species (Fléttur) within the habitat type.
Ríkjandi æðplöntur í vistgerðinni. – Dominant vascular plant species within the habitat type.