Álftafjörður
Álftafjörður
Svæðið er tilnefnt vegna vistgerða á landi og fugla. Það er að hluta innan tillögusvæðisins í Álftafjörður–Hamarsfjörður–Papey, sem tilnefnt er vegna sela.
Álftafjörður
![Álftafjörður á Íslandskorti Álftafjörður á Íslandskorti](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/b-hluti_smakort_6008_alftafjordur_v01_0.jpg?itok=s40fOq4y)
![Skeraleirur Skeraleirur](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/skeraleira_alftafjordur.jpg?itok=a8z6ARWt)
Álftafjörður.
Mörk
Álftafjörður, ásamt sjávarfitjum sunnan fjarðar og Starmýrarfjörum sem liggja fyrir mynni fjarðarins.
Stærð
58,1 km2
Hlutfall lands: 17%
Hlutfall fjöru: 82%
Hlutfall sjávar: <1%
Hlutfall fersks vatns: <1%
Svæðislýsing
Grunnur fjörður, með víðáttumiklum leirum og sjávarfitjum, þeim mestu á Austurlandi. Landbúnaður er á jörðum við fjörðinn. Einnig lítilsháttar æðardúntekja fisk- og fuglaveiðar og eggjataka.
Forsendur fyrir vali
Forgangslandvistgerðir eru sjávarfitjungsvist og gulstararfitjavist. Svæðið er alþjóðlega mikilvægur viðkomustaður vaðfugla á fartíma, einkum þó jaðrakans að vori. Fjöldi álfta á fjaðrafellitíma nær líka alþjóðlegum verndarviðmiðum.
Vistgerðir
Vistgerð | Km2 | % af heildarflatarmáli | |
---|---|---|---|
Land | Gulstararfitjavist | 0,42 | 5 |
Land | Sjávarfitjungsvist | 1,79 | 12 |
Fuglar
Tegund | Árstími | Fjöldi | Ár | % af íslenskum stofni |
---|---|---|---|---|
Álft | Fellir | 1.063 | 2005 | 4 |
Jaðrakan | Far | 4.000 | 1999–2002 | 10 |
Sjá einnig ítarlegri umfjöllun um fjöru- og grunnsævissvæðið Álftafjörður.
Ógnir
Landbúnaður, ferðaþjónusta, umferð og vegagerð, efnistaka.
Aðgerðir til verndar
Framræsla verði ekki meiri á svæðinu, endurheimt votlendis þar sem landnýting leyfir, gæta þess að næringarefni berist ekki frá landbúnaði og stilla beit í hóf. Tryggja að fjörur verði ekki skertar við vegagerð, malarnám eða aðrar framkvæmdir.
Núverandi vernd
Aðrar náttúruminjar | Númer |
---|---|
Hofsdalur, Tunga (Hofstunga), Hofsá, Geithellnadalur, (Múladalur) og Þrándarjökull | 625 |
Álftafjörður | 652 |
Kortasjá
Útgáfudagsetning
5. apríl 2018, uppfært 26. maí 2020.