Glitrós (Rosa dumalis)

Mynd af Glitrós (Rosa dumalis)
Mynd: Hörður Kristinsson
Glitrós (Rosa dumalis)

Útbreiðsla

Afar sjaldgæf, aðeins fundin í Kvískerjum í Öræfum (Hörður Kristinsson - floraislands.is).

Búsvæði

Kjarrlendi og gróðursælar hlíðar (Hörður Kristinsson 1998).

Lýsing

Meðalhár rósarunni (50–150 sm) með fjöðruð blöð og bleik blóm. Hún hefur ekki fundist í blóma á Íslandi nema í ræktun.

Blað

Blöðin eru stakfjöðruð, með tveim til þrem hliðarpörum. Smáblöðin hvasstennt, egglaga eða sporbaugótt, oftast með greinilegum oddi að framan, 2–3,5 sm löng og 1,5–2,5 sm breið. Axlablöðin löng, samgróin stilknum langt upp eftir (1–1,5 sm). Stöngullinn með gisnum, sterklegum, klóbognum þyrnum. Greinarnar slútandi (Hörður Kristinsson 1998).

Blóm

Blómin eru bleik, 4–6 sm í þvermál, krónublöðin öfughjartalaga, 2–3 sm löng, bikarblöðin um 1,5 sm, oddlöng, útsveigð (Hörður Kristinsson 1998).

Greining

Líkist helst þyrnirós en glitrós hefur bleik blóm, gisnari þyrna, stærri axlablöð og oddmjórri blaðtennur.

Válisti

CR (tegund í bráðri hættu)

Ísland Heimsválisti
CR NE

Forsendur flokkunar

Glitrós er einungis fundin á einum stað á suðaustanverðu landinu og er stofninn mjög lítill, færri en 50 fullþroska einstaklingar.

Viðmið IUCN: D

D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2008: Glitrós er á válista í hættuflokki CR (í bráðri hættu).

Válisti 1996: Glitrós er á válista í hættuflokki CR (í bráðri hættu).

Verndun

Útbreiðsla - Glitrós (Rosa dumalis)
Útbreiðsla: Glitrós (Rosa dumalis)

Höfundur

Var efnið hjálplegt? Aftur upp

Aftur upp

Takk fyrir!

Hvað má betur fara?

  • Fela
  • |