Hrossagaukur (Gallinago gallinago)
Hrossagaukur (Gallinago gallinago)
Útbreiðsla
Hrossagaukur verpur í Evrópu og Asíu til Kyrrahafs. Hann er nær alger farfugl sem fer til V-Evrópu á vetrum, einkum til Írlands.
Stofn
Hér á landi er hrossagaukur algengur varpfugl og er stofninn metinn um 300.000 pör (Kristinn Haukur Skarphéðinsson o.fl. 2017). Eldra mat sem byggði á hliðstæðum aðferðum en rýrari gögnum var 180.000 pör (Thorup 2006). Íslenskir fuglar tilheyra sérstakri deilitegund (Gallinago gallinago faeroensis) og verpa >95% hennar hér, en auk þess í Færeyjum og á norðanverðum Bretlandseyjum.
Dreifing og þéttleiki eftir vistlendum: Hrossagaukur er láglendisfugl útbreiddur um allt land en algengastur um vestari helming landsins (sjá kort). Reiknuð stofnstærð er 305.700 pör og líklega er <1% stofns ofan 300 m hæðarlínu (Kristinn Haukur Skarphéðinsson o.fl. 2017). Mestur þéttleiki er í mýravist 21,3 pör/km², næst kemur graslendi með 19,7 pör/km² og þar á eftir lúpína með 19,5 pör/km². Mikilvægustu vistir eru mýravist með 97.600 pör og móavist með 67.400 pör. Um 29% hrossagauka verpa innan mikilvægra fuglasvæða (sjá töflu).
Válisti
LC (ekki í hættu)
Ísland | Evrópuválisti | Heimsválisti |
---|---|---|
LC | LC | LC |
Forsendur flokkunar
Kynslóðalengd (IUCN): 4,8 ár
Tímabil sem mat miðast við (3 kynslóðir):
Hrossagaukar eru mjög algengir hér á landi og verpa víða en stofnþróun er óþekkt. Kerfisbundnar mælingar á þéttleika mófugla eru skammt á veg komnar (hófust árið 2006) og hafa aðeins verið teknar saman að litlum hluta. Ekki eru vísbendingar um að hrossagauki hafi fækkað hér og er hann því flokkaður sem tegund sem ekki er í hættu (LC).
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2000: Hrossagaukur var ekki í hættu (LC).
Verndun
Hrossakaukur er friðaður samkvæmt lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.
Mikilvæg svæði
Engir viðkomustaðir eða vetrarstöðvar hér á landi teljast alþjóðlega mikilvægar fyrir hrossagauk enda hópast hann ekki saman svo neinu nemur á fartíma.
A4 i: Evrópa = 125.200 fuglar/birds; 41.733 pör/pairs (Wetlands International 2016)
B1 i: 5.700 fuglar/birds; 1.900 pör/pairs (Wetlands International 2016 uppfært/updated)
Töflur
Reiknaður fjöldi hrossagauka sem gæti orpið á þeim mikilvægu fuglasvæðum þar sem >1% íslenska stofnsins er að finna – Calculated number of breeding Gallinago gallinago within important bird areas with >1% of the Icelandic population.*
Svæði Area |
Svæðisnúmer Area code |
Árstími Season |
Fjöldi (pör) Number (pairs) |
Ár Year |
% af íslenskum stofni % of Icelandic popul. |
Alþjóðlegt mikilvægi International importance |
---|---|---|---|---|---|---|
Borgarfjörður–Löngufjörur | FG-V_10 | B | 6.560 | 2013 | 2,1 | |
Laxárdalsheiði | VOT-V_3 | B | 4.322 | 2013 | 1,4 | |
Arnarvatnsheiði | VOT-N_1 | B | 3.272 | 2013 | 1,1 | |
Skagi | VOT-N_5 | B | 4.213 | 2013 | 1,4 | |
Melrakkaslétta | FG-N_4 | B | 7.382 | 2013 | 2,4 | |
Úthérað | VOT-A_3 | B | 4.078 | 2013 | 1,3 | |
Suðurlandsundirlendi | VOT-S_3 | B | 48.609 | 2013 | 15,9 | |
Önnur mikilvæg svæði Other important areas |
B | 10.355 | 2013 | 3,4 | ||
Alls–Total | 88.791 | 29,0 | ||||
*byggt á Náttúrufræðistofnun Íslands, óbirt gögn/unpubl.data |
English summary
The Gallinago gallinagopopulation in Iceland is estimated 306,000 pairs, based on measured densities in different habitat types and known and probable distribution; 26% may nest in IBAs designated for other species, but such areas are specifically designated for this species.
Icelandic Red list 2018: Least concern (LC) as in 2000.
Heimildir
Kristinn Haukur Skarphéðinsson, Borgný Katrínardóttir, Guðmundur A. Guðmundsson og Svenja N.V. Auhage 2016. Mikilvæg fuglasvæði á Íslandi. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar Nr. 55. 295 s. rafræn útgáfa leiðrétt í nóvember 2017. http://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_55.pdf.
Thorup, O., ritstj. 2006. Breeding waders in Europe 2000. International Wader Studies 14. Thetford: International Wader Study Group. (Tölur yfir íslenska stofna byggjast á óbirtri samantekt: Guðmundur A. Guðmundsson 2002. – Estimates of breeding populations of Icelandic waders worked out for the „Breeding waders in Europe 2000” report).
Wetlands International 2016. Waterbird Population Estimates. http://wpe.wetlands.org/search [skoðað 26. nóvember 2016].
Höfundur
Var efnið hjálplegt? Aftur upp
Takk fyrir!