Arnarvatnsheiði
Arnarvatnsheiði
VOT-N 1
Arnarvatnsheiði
![Arnarvatnsheiði á Íslandskorti Arnarvatnsheiði á Íslandskorti](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/kort_vot-n_1_arnarvatnsheidi.jpg?itok=_nJkXlBO)
Hnit – Coordinates: N64,94580, V20,71435
Sveitarfélag – Municipality: Borgarbyggð, Húnaþing vestra
IBA-viðmið – Category: A4i, B1i, B2
Stærð svæðis – Area: um 165.200 ha
Arnarvatnsheiði og Tvídægra eru víðáttumikið og vel gróið heiðaflæmi sem liggur milli Borgarfjarðar og Húnavatnssýslu, 400−600 m y.s. og hækkar eftir því sem austar dregur. Mýrar og flóar eru víða og fjöldi vatna og tjarna. Mikið fuglalíf er á Arnarvatnsheiði og er hún alþjóðlega mikilvægt varpsvæði himbrima (75 óðul) og álftar (639 pör). Álftamergð á fjaðrafellitíma uppfyllir einnig alþjóðleg viðmið (1.236 fuglar). Meðal annarra tegunda sem verpa í talsverðum mæli á svæðinu eru lómur, gróflega áætlað 25 pör eða tæp 2% íslenska stofnsins, duggönd og hávella.
Svæðið er að meginhluta á náttúruminjaskrá og IBA-skrá.
![Skammá og Arnarvatn stóra á Arnarvatnsheiði Skammá og Arnarvatn stóra á Arnarvatnsheiði](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/vot-n_1-arnarvatnsheidi_opj.jpg?itok=GpT9P1a1)
Skammá og Arnarvatn stóra á Arnarvatnsheiði.
Helstu fuglategundir á Arnarvatnsheiði – Key bird species at Arnarvatnsheiði*
Tegund Species |
Latneskt heiti Scientific name |
Árstími Season |
Fjöldi (pör) Number (pairs) |
Ár Year |
% af íslenskum stofni % of Icelandic popul. |
Alþjóðlegt mikilvægi International importance |
---|---|---|---|---|---|---|
Lómur1 | Gavia stellata | Varp–Breeding | 25 | 2012 | 1,7 | |
Himbrimi | Gavia immer | Varp–Breeding | **75 | 2016 | 15,0 | A4i, B1i, B2 |
Álft | Cygnus cygnus | Varp–Breeding | 639 | 2012 | 6,1 | A4i, B1i |
Álft | Cygnus cygnus | Fellir–Moult | ***1.236 | 2005 | 4,8 | B1i |
Duggönd | Aythya marila | Varp–Breeding | ****61 | 2012 | 1,5 | |
*Náttúrufræðistofnun Íslands, óbirt gögn. – IINH, unpublished data. **Þekkt óðul. – Known territories. ***Fuglar. – Birds. ****Lágmarkstala. – Absolute minimum. 1Náttúrufræðistofnun Íslands, gróft mat. – IINH, rough estimate. |
English summary
Arnarvatnsheiði wetland and lake studded plateau, NW-Iceland, is internationally important for Gavia immer (75 territories) and Cygnus cygnus breeding (639 pairs) and moulting (1,236 birds).