Útbreiðsla
Lómur verpur í N-Ameríku, en einnig á Grænlandi, í Evrópu og Asíu. Hann er farfugl að einhverju leyti og hingað koma líklega vetrar- og jafnvel fargestir frá Grænlandi.
Stofn
Lómur er allalgengur hér á landi og hefur verið giskað á 1.000−2.000 pör (Umhverfisráðuneytið 1992). Þekktir eru um 1.300 varpstaðir og enn eru stór landsvæði ókönnuð með tilliti til lómsvarps (Ævar Petersen o.fl. 2013). Sums staðar verpa lómar í miklu nábýli, oft tugir para á litlu svæði (sjá kort).
Válisti
LC (ekki í hættu)
Ísland |
Evrópuválisti |
Heimsválisti |
---|
LC |
LC |
LC |
Forsendur flokkunar
Kynslóðalengd (IUCN): 9,8 ár
Tímabil sem mat miðast við (3 kynslóðir): 1985–2014
Lómastofninn er það stór (> 1.000 kynþroska einstaklingar) og verpur dreift að hann flokkast ekki sem válistategund af þeim ástæðum. Stofnþróun er hns vegar ekki nógu vel þekkt hér á landi, sérstaklega í ljósi þess hve langt viðmiðunartímabilið er (29 ár) og kerfisbundin vöktun varpfugla hefur staðið í tiltölulega stuttan tíma eða frá 2006 (Ævar Petersen o.fl. 2013). Vetrarvísitala sýnir mikla aukningu á þessum tíma en jafnframt miklar sveiflur í fjölda fugla sem tengjast væntanlega fiskigöngum (sjá graf). Lómur er því ekki talinn í hættu (LC).
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2000: Lómur var ekki í hættu (LC).
Verndun
Lómur er friðaður samkvæmt lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.
Mikilvæg svæði
Fimm varpsvæði hér á landi teljast alþjóðlega mikilvæg fyrir lóm (sjá töflu).
IBA viðmið – IBA criteria:
A4 i: Evrópa (vetrarstofn/winter) = 300 fuglar/birds; 100 pör/pairs (Wetlands International 2016)
B1 i: A4 i
Töflur
Lómsvarp á mikilvægum fuglasvæðum á Íslandi – Breeding Gavia stellata in important bird areas in Iceland.
Svæði Area |
Svæðisnúmer Area code |
Árstími Season |
Fjöldi (pör) Number (pairs) |
Ár Year |
% af íslenskum stofni % of Icelandic popul. |
Alþjóðlegt mikilvægi International importance |
---|
Borgarfjörður–Löngufjörur1 |
FG-V_10 |
B |
150 |
2016 |
10,0 |
A4i, B1i |
Breiðafjörður1 |
FG-V_11 |
B |
100 |
2016 |
6,7 |
A4i, B1i |
Arnarvatnsheiði2 |
VOT-N_1 |
B |
25 |
2012 |
1,7 |
|
Skagi2 |
VOT-N_5 |
B |
30 |
2012 |
2,0 |
|
Öxarfjörður3 |
VOT-N_12 |
B |
120 |
2009 |
8,0 |
A4i, B1i |
Melrakkaslétta1,4 |
FG-N_4 |
B |
110 |
2016 |
7,3 |
A4i, B1i |
Úthérað5 |
VOT-A_3 |
B |
220 |
2000 |
14,7 |
A4i, B1i |
Hornafjörður–Kolgríma6 |
VOT-A_4 |
B |
30 |
2016 |
2,0 |
|
Breiðamerkursandur6 |
VOT-A_5 |
B |
30 |
2016 |
2,0 |
|
Suðurlandsundirlendi1 |
VOT-S_3 |
B |
70 |
2016 |
4,7 |
|
Önnur mikilvæg svæði Other important areas |
|
B |
80 |
2016 |
5,3 |
|
Alls–Total |
|
|
965 |
|
64,3 |
|
1Náttúrufræðistofnun Íslands, óbirt gögn/unpubl. data 2Náttúrufræðistofnun Íslands, gróft mat/rough estimate 3Þorkell L. Þórarinsson o.fl. 2013; Náttúrustofa Norðausturlands, óbirt gögn/unpubl. data 4Guðmundur Örn Benediktsson, pers. uppl./pers. com. 5Guðmundur A. Guðmundsson o.fl. 2001 6Björn Arnarson, pers. uppl./pers. com. |
English summary
The Gavia stellata population in Iceland is roughly estimated 1,000‒2,000 pairs. Five breeding areas are designated IBAs for this species and 64% of the population breeds in such areas.
Icelandic Red list 2018: Least concern (LC) as in 2000.
Heimildir
Guðmundur A. Guðmundsson, Guðmundur Guðjónsson, Sigurður H. Magnússon, Kristbjörn Egilsson, Halldór Walter Stefánsson og Kristinn Haukur Skarphéðinsson 2001. Kárahnjúkavirkjun: áhrif breytinga á vatnafari Jökulsár á Dal og Lagarfljóts á gróður, fugla og seli. Náttúrufræðistofnun Íslands, NÍ-01005. Reykjavík: Náttúrufræðistofnun Íslands.
Umhverfisráðuneytið 1992. Iceland: national report to UNCED. Reykjavík: Umhverfisráðuneytið.
Wetlands International 2016. Waterbird Population Estimates. http://wpe.wetlands.org/search [skoðað 26. nóvember 2016].
Þorkell Lindberg Þórarinsson, Aðalsteinn Örn Snæþórsson, Böðvar Þórisson, Guðmundur A. Guðmundsson, Halldór Walter Stefánsson, Kristinn Haukur Skarphéðinsson og Yann Kolbeinsson 2013. Fuglar á Austursandi við Öxarfjörð. Bliki 32: 59–66.
Ævar Petersen, Guðmundur Ö. Benediktsson og Ib K. Petersen 2013. Monitoring and population changes of Red-throated Divers in Iceland. Erindi flutt á International Loon and Diver Workshop, 21.–22. september 2013, Hanko, Finnlandi.
Höfundur
Kristinn Haukur Skarphéðinsson maí 2017, október 2018
Var efnið hjálplegt?
Aftur upp