30. mars 2016. Borgþór Magnússon: Vöktun á gróðri og ástandi beitilands
30. mars 2016. Borgþór Magnússon: Vöktun á gróðri og ástandi beitilands
30. mars 2016. Borgþór Magnússon: Vöktun á gróðri og ástandi beitilands
![Borgþór Magnússon Borgþór Magnússon](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/borgthor.jpg?itok=szZ7__kJ)
Borgþór Magnússon
Borgþór Magnússon plöntuvistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands flytur erindið „Vöktun á gróðri og ástandi beitilands“ á Hrafnaþingi miðvikudaginn 30. mars kl. 15:15. Meðhöfundur er Járngerður Grétarsdóttir hjá Landbúnaðarháskóla Íslands.
Frá árinu 1997 hefur staðið yfir vöktun á gróðri og ástandi haga á Norður- og Suðurlandi. Lagðir voru út 100 fastir mælireitir í heimalöndum og afréttum, ástand lands metið, gróður greindur og mældur og yfirlitsmyndir teknar af hverjum reit. Verkefnið, sem er unnið í samstarfi Náttúrufræðistofnunar Íslands, Landgræðslu ríkisins og Landbúnaðarháskóla Íslands, beindist í upphafi að landi þar sem hrossabeit var mikil og nýting sumstaðar yfir hóflegum mörkum. Mörg vöktunarsvæðanna eru einnig nýtt til sauðfjárbeitar. Árið 2005 voru reitirnir teknir út í annað sinn og kom þá í ljós að víða hafði orðið mikil breyting á landi, gróska hafði aukist, dregið úr rofi og ástand batnað. Þetta var rakið til hlýnunar loftslags og bættrar meðferðar beitilands.
Sumarið 2015 var vitjað um reitina í þriðja sinn og þeir teknir út á sama hátt og árið 2005. Niðurstöður benda til að talsverðar breytingar hafi orðið á gróðri og ástandi lands á þessu tímabili en misjafnar milli svæða. Þær verða kynntar nánar í fyrirlestrinum og bornar saman við niðurstöður rannsókna á breytingum á grósku landsins alls undanfarna áratugi sem lesa má úr gögnum frá gervitunglum. Jafnframt verður rætt um notagildi fastra mælireita til langtímarannsókna á gróðri og mats á ástandi beitilanda en þeirri aðferð hefur lítt verið beitt hér á landi.
![Mælireitur, Mælireitir í högum á Norður- og Suðurlandi Mælireitur, Mælireitir í högum á Norður- og Suðurlandi](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/bm_hagapunktar.jpg?itok=vL7f0XXt)
Fastir mælireitir í högum á Norður- og Suðurlandi sem lagðir voru út 1997–1998 og endurmældir 2005 og 2015. Reitirnir liggja í allt að 600 m h.y.s. á Norðurlandi.
![Mælireitur í grösugum haga í góðu ástandi í Skagafirði Mælireitur í grösugum haga í góðu ástandi í Skagafirði](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/bm_maelireitur_skagafirdi.jpg?itok=eDQH2tg3)
Mælireitur í grösugum haga í góðu ástandi í Skagafirði. Ljósm. Borgþór Magnússon, 21. ágúst 2015.