Fossar í Vatnsdalsá

Svæðið er tilnefnt vegna jarðminja. Það nær að hluta inn í tillögusvæðið Grímstunguheiði–Blanda, sem tilnefnt er vegna fugla og vistgerða á landi.

Fossar í Vatnsdalsá á Íslandskorti
Stekkjarfoss í Vatnsdalsá
Mynd: Ólafur Páll Jónsson

Stekkjarfoss.

Dalsfoss í Vatnsdalsá
Mynd: Ólafur Páll Jónsson

Dalsfoss.

Friðmundarárfoss
Mynd: Ólafur Páll Jónsson

Friðmundarárfoss.

Mörk

Mörk miðast við fossa í Vatnsdalsá, ásamt gljúfrum og 200 m jaðarsvæði. Svæðið nær frá Stekkjarfossi skammt norðan bæjarins Forsæludals, upp með Vatnsdalsá að fossinum Skínanda, og upp með Friðmundará að fossum í Friðmundarárgili.

Stærð

3,74 km2

Lýsing

Vatnsdalur skiptist í þrjá inndali sem ganga niður af Grímstunguheiði og nefnist sá fyrir miðið Forsæludalur. Efst í Forsæludal, við heiðarbrún, rennur Friðmundará í Vatnsdalsá. Friðmundará á upptök sín í Vestara-Friðmundarvatni en Vatnsdalsá á upptök sín í hinum ýmsu vötnum, tjörnum og flám á Grímstunguheiði. Til að byrja með renna árnar á flötum heiðarlöndum en við heiðarbrún fara þær um hrikaleg gljúfur. Þar er að finna allmarga og fjölbreytta fossa á fáförnum slóðum, allt frá bænum Forsæludal og inn að Bótarfelli á Grímstunguheiði. Ofan Forsæludals eru fossarnir Stekkjarfoss og Dalsfoss. Ofan Ármóta, þar sem Friðmundará fellur í Vatnsdalsá, er Friðmundarárfoss við Fossnef, auk fossa við heiðarbrún í grennd við Grátsmýri. Í Vatnsdalsá má nefna fossana Skessufoss, Landsendafoss og Bergbúa í Vatnsdalsárgljúfri. Ofan gljúfra eru fossarnir Kerafoss, Freyðandi, Rjúkandi og Skínandi.

Flokkun

Grunnflokkur: Virk ferli landmótunar

Flokkur: Vatnafar og jöklar

Gerð: Fossar, rofsfossar

Forsendur fyrir vali

Röð svipmikilla fossa á fáförnum slóðum.

Ógnir

Virkjanir og vatnaveitingar. Mögulega ferðamennska en svæðið er þó ekki vel aðgengilegt.

Aðgerðir til verndar

Tryggja þarf að vatnsrennsli verði ekki skert. Innviðauppbyggingar gæti verið þörf til að koma í veg fyrir utanvegaakstur.

Núverandi vernd

Aðrar náttúruminjar Nr.
Fossar í Vatnsdalsá 410

Kortasjá

Fossar í Vatnsdalsá í kortasjá

Útgáfudagsetning

3. desember 2020.