Grímstunguheiði–Blanda

Svæðið er tilnefnt vegna fugla.

Víðidalstunguheiði-Blanda  á Íslandskorti
Himbrimar á Smalatjörn á Auðkúluheiði
Mynd: Guðmundur Guðjónsson

Smalatjörn á Auðkúluheiði.

Mörk

Heiðar upp af Víðidal og Blöndudal, frá Hrafnabjargatungu norðan Gilsvatns og suður fyrir Þrístiklu og Gedduvatn. Að austan eru mörkin um Rugludalsbungu og vestur yfir Gedduhóla og um Rjóðurháls.

Stærð

369,6 km2

Hlutfall lands: 90%
Hlutfall fersks vatns: 10%

Svæðislýsing

Vel gróið heiðaflæmi með votlendi, tjörnum og vötnum. Beitilönd búfjár og silungsveiði í vötnum.

Forsendur fyrir vali

Alþjóðlega mikilvægt svæði fyrir álft, bæði á varptíma og fjaðrafellitíma, sem og himbrima í varpi.

Fuglar

Forgangstegundir varp- og fellifugla
Tegund  Árstími  Fjöldi (pör) Ár  % af íslenskum stofni
Himbrimi Varp *16 2016 3
Álft Varp 157 2012 1
Álft Fellir **557 2005 2
*Þekkt óðul
**Fuglar

Sjá einnig ítarlegri umfjöllun um fuglasvæðið Víðidalstunguheiði–Blanda.

Ógnir  

Virkjanir og veiðimennska.

Aðgerðir til verndar

Tryggja að búsvæði og farleiðir fugla verði ekki skert. Stýra þarf nýtingu veiðimanna og umferð þeirra um svæðið.

Núverandi vernd

Aðrar náttúruminjar Númer
Fossar í Vatnsdalsá og Friðmundará 410
Eyjavatn og Friðmundarvatn vestara 411
Blöndugil, Vallgil og Rugludalur 412

Kortasjá

Grímstunguheiði–Blanda í kortasjá

Útgáfudagsetning

5. apríl 2018, uppfært 26. maí 2020, 3. desember 2020.