Grímstunguheiði–Blanda
Grímstunguheiði–Blanda
Svæðið er tilnefnt vegna fugla.
Grímstunguheiði–Blanda
![Víðidalstunguheiði-Blanda á Íslandskorti Víðidalstunguheiði-Blanda á Íslandskorti](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/b-hluti_smakort_4004_vididalstunguheidi-blanda_v01_0.jpg?itok=V3W12VRZ)
![Himbrimar á Smalatjörn á Auðkúluheiði Himbrimar á Smalatjörn á Auðkúluheiði](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/vot-n_2-viddalstunguheidi_gcg.jpg?itok=lzzuR7LE)
Smalatjörn á Auðkúluheiði.
Mörk
Heiðar upp af Víðidal og Blöndudal, frá Hrafnabjargatungu norðan Gilsvatns og suður fyrir Þrístiklu og Gedduvatn. Að austan eru mörkin um Rugludalsbungu og vestur yfir Gedduhóla og um Rjóðurháls.
Stærð
369,6 km2
Hlutfall lands: 90%
Hlutfall fersks vatns: 10%
Svæðislýsing
Vel gróið heiðaflæmi með votlendi, tjörnum og vötnum. Beitilönd búfjár og silungsveiði í vötnum.
Forsendur fyrir vali
Alþjóðlega mikilvægt svæði fyrir álft, bæði á varptíma og fjaðrafellitíma, sem og himbrima í varpi.
Fuglar
Tegund | Árstími | Fjöldi (pör) | Ár | % af íslenskum stofni |
---|---|---|---|---|
Himbrimi | Varp | *16 | 2016 | 3 |
Álft | Varp | 157 | 2012 | 1 |
Álft | Fellir | **557 | 2005 | 2 |
*Þekkt óðul | ||||
**Fuglar |
Sjá einnig ítarlegri umfjöllun um fuglasvæðið Víðidalstunguheiði–Blanda.
Ógnir
Virkjanir og veiðimennska.
Aðgerðir til verndar
Tryggja að búsvæði og farleiðir fugla verði ekki skert. Stýra þarf nýtingu veiðimanna og umferð þeirra um svæðið.
Núverandi vernd
Aðrar náttúruminjar | Númer |
---|---|
Fossar í Vatnsdalsá og Friðmundará | 410 |
Eyjavatn og Friðmundarvatn vestara | 411 |
Blöndugil, Vallgil og Rugludalur | 412 |
Kortasjá
Grímstunguheiði–Blanda í kortasjá
Útgáfudagsetning
5. apríl 2018, uppfært 26. maí 2020, 3. desember 2020.