Laugarvatn–Apavatn–Brúará
Laugarvatn–Apavatn–Brúará
Svæðið er tilnefnt vegna vistgerða á landi, ferskvatnsvistgerða og fugla.
Laugarvatn–Apavatn–Brúará
Mörk
Laugarvatn og Apavatn í Laugardal og Brúará frá upptökum við Högnhöfða suður að ármótum Hvítár við Skálholtstungu. Svæðið nær einnig til Hólaár sem rennur til suðurs úr Laugarvatni, auk 100 m verndarjaðars meðfram árbökkum og umhverfis Apavatn.
Stærð
44,3 km2
Hlutfall lands: 54%
Hlutfall fersks vatns: 46%
Svæðislýsing
Lífrík stöðuvötn og ár og nærumhverfi þeirra, einnig mýrasvæði suðvestur og norðaustur af Laugarvatni. Fjölmargar lindár og lækir falla til vatnanna og Brúarár, þar á meðal Hagaós úr Apavatni. Tilkomumikið landslag er í Brúarskörðum. Fjölskrúðugur gróður og fuglalíf enda fjölbreytt búsvæði til staðar. Á svæðinu er stundaður landbúnaður og útivist, orlofshús eru víða.
Forsendur fyrir vali
Mýrahveravist einkennir jarðhitasvæðin Reykjanes og Þorlákshver við Brúará og eru þau lítt snortin. Þar eru heitar uppsprettur og renna frá þeim jarðhitalækir. Þrjár tegundir æðplanta, sem eru alfarið eða að mestu bundnar við jarðhita, finnast á svæðinu en það eru vatnsögn, flóajurt og vatnsnafli. Brúará er lindá þar sem er stór og að mestu staðbundinn bleikjustofn. Alþjóðlega mikilvægt svæði fyrir húsendur og gulendur á veturna. Mikið af öndum dvelst á ám og vötnum á fartíma, þar á meðal duggönd og straumönd.
Vistgerðir
Vistgerð | Km2 | % af heildarflatarmáli | |
---|---|---|---|
Land | Mýrahveravist | <0,01 | 3 |
Ferskvatn | Ár á yngri berggrunni | 66,96* | 1 |
Ferskvatn | Jarðhitalækir | ||
*Lengd í km |
Fuglar
Tegund | Árstími | Fjöldi | Ár | % af íslenskum stofni |
---|---|---|---|---|
Duggönd | Far | 720 | 2012 | 7 |
Húsönd | Vetur | 33 | 2006 | 2 |
Gulönd | Vetur | 28 | 2005–2010 | 3 |
Straumönd | Far | 150+ | 1990–1995 | 1+ |
Sjá einnig ítarlegri umfjöllun um fuglasvæðið Laugarvatn–Apavatn–Brúará
Ógnir
Vaxandi frístundabyggð, ferðamennska og hætta á mengandi frárennsli. Aðrar ógnir stafa af íbúabyggð, framræslu, hrossabeit, skógrækt, jarðhitanýtingu, vegagerð og bílaumferð.
Aðgerðir til verndar
Tryggja að ekki verði byggt of nærri vatns- og árbökkum. Til að ná fram skilvirkri vernd vatnavistgerða þarf að tryggja að jaðarsvæðum þeirra sé ekki raskað í að minnsta kosti 100 m fjarlægð frá þeim. Gæta að mengun frá íbúa- og frístundabyggð og tryggja að jarðhitanýting spilli ekki sérstæðum jarðhitasvæðum.
Núverandi vernd
Aðrar náttúruminjar | Númer |
---|---|
Brúará og Brúarskörð | 739 |
Laugarvatn | 741 |
Skálholtstunga og Mosar | 764 |
Selsflóð | 765 |
Flatholt–Reiðholt | 766 |
Reykjanes | 767 |
Þorkelsholt–Hamrar | 768 |
Kortasjá
Laugarvatn–Apavatn–Brúará í kortasjá
Útgáfudagsetning
5. apríl 2018, uppfært 26. febrúar 2019, 2. apríl 2019, 17. maí 2019, 26. maí 2020.