Ytri-Rangá
Ytri-Rangá
Svæðið er tilnefnt vegna ferskvatnsvistgerða. Það nær yfir tillögusvæðið Fossabrekkur, sem tilnefnt er vegna jarðminja.
Ytri-Rangá
![Ytri-Rangá á Íslandskorti Ytri-Rangá á Íslandskorti](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/b-hluti_smakort_7016_ytri-ranga_v01_0.jpg?itok=fklpYLzw)
![Ytri-Rangárbotnar Ytri-Rangárbotnar](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/ytri-ranga-nk.jpg?itok=asmx2Nrm)
Ytri-Rangárbotnar.
Mörk
Frá upptökum Ytri-Rangár í Rangárbotnum sunnan við Landmannaleið, til suðvesturs eftir árfarveginum og kvíslum henni tengdum, að Höfðalæk norðan við Svínahöfða.
Stærð
34,2 km2
Hlutfall lands: 97%
Hlutfall fersks vatns: 3%
Svæðislýsing
Vatnsmikil lindá sem fellur úr Rangárbotnum milli Heklu og Búrfells. Gróðurvin við Rangárbotna og sandauðnir í kring. Mjög vatnsmikil lind, þar sem m.a. hafa fundist grunnvatnsmarflær. Neðar koma fram stórar uppsprettur sem renna í Rangá. Við Galtalæk koma upp miklar uppsprettur, oft með miklum þrýstingi, sem mynda Galtalæk. Einnig eru smærri uppsprettur innan Galtalækjarskógar, en þar hafa fundist grunnvatnsmarflær. Á svæðinu er stunduð skógrækt og ferðaþjónusta, og frístundabyggð fer þar vaxandi.
Forsendur fyrir vali
Vatnsmiklar lindir þar sem fundist hafa grunnvatnsmarflær.
Vistgerðir
Vistgerð | Km2 | % af heildarflatarmáli | |
---|---|---|---|
Ferskvatn | Ár á yngri berggrunni | 55,75* | 1 |
Ferskvatn | Kaldar lindir | <0,01 | 5 |
*Lengd í km |
Ógnir
Frístundabyggð og ferðamennska, skógrækt, ágengar tegundir og námavinnsla. Mikil umferð ökutækja í næsta nágrenni.
Aðgerðir til verndar
Tryggja vernd vistgerða. Til að ná fram skilvirkri vernd vatnavistgerða þarf að tryggja að jaðarsvæðum þeirra sé ekki raskað í að minnsta kosti 100 m fjarlægð frá þeim. Setja skorður við byggingum innan verndarjaðars og draga úr lífrænni mengun.
Núverandi vernd
Aðrar náttúruminjar | Númer |
---|---|
Hekla | 730 |
Kortasjá
Útgáfudagsetning
5. apríl 2018, uppfært 26. maí 2020.