Ingólfshöfði
Ingólfshöfði
Svæðið er tilnefnt vegna fugla. Það nær að hluta yfir tillögusvæðið Skeiðarársandur, sem tilnefnt er vegna fugla og sela.
Ingólfshöfði
![Ingólfshöfði á Íslandskorti Ingólfshöfði á Íslandskorti](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/b-hluti_smakort_6014_ingolfshofdi_v01_0.jpg?itok=0Zz9SPoB)
![Ingólfshöfði Ingólfshöfði](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/sf-a_14-ingolfshofdi_ag.jpg?itok=HtqiTq1K)
Ingólfshöfði.
Mörk
Ingólfshöfði syðst í Öræfum, ásamt 1 km verndarjaðri til sjávar.
Stærð
4 km2
Hlutfall lands: 16%
Hlutfall fjöru: 3%
Hlutfall sjávar: 81%
Svæðislýsing
Að hluta vel gróinn klettahöfði en foksandur liggur að honum landmegin. Mikil ásókn ferðamanna en nánast ekkert núorðið um aðrar nytjar, s.s. sauðfjárbeit, fugla- og eggjatöku.
Forsendur fyrir vali
Mikið fuglalíf er í Ingólfshöfða og nær álkuvarp þar alþjóðlegum verndarviðmiðum.
Fuglar
Tegund | Árstími | Fjöldi (pör) | Ár | % af íslenskum stofni |
---|---|---|---|---|
Álka | Varp | 5.916 | 2007 | 2 |
Sjá einnig ítarlegri umfjöllun um sjófuglabyggðina Ingólfshöfði.
Ógnir
Ferðamennska og hlunnindanytjar.
Aðgerðir til verndar
Ingólfshöfði var friðlýstur sem friðland árið 1974. Kanna þarf hvort nauðsynlegt sé að stýra umferð betur og auka eftirlit í höfðanum. Styrkja vernd búsvæða í stjórnunar- og verndaráætlun.
Núverandi vernd
Friðlýst svæði | Flokkur friðlýsingar |
---|---|
Ingólfshöfði | Friðland |
Kortasjá
Útgáfudagseting
5. apríl 2018, uppfært 26. maí 2020.