Arnarvatnsheiði
Arnarvatnsheiði
Svæðið er tilnefnt vegna vistgerða á landi, ferskvatnsvistgerða og fugla.
Arnarvatnsheiði
Mörk
Arnarvatnsheiði og Tvídægra eru heiðalönd ofan byggðar í Hrútafirði, Miðfirði, Víðdal og Vatnsdal í Húnavatnssýslum, suður fyrir Norðlingafljót, niður undir fjallið Strút og þaðan vestur og norður um dalbotna ofan byggðar í Hvítársíðu, Þverárhlíð og norður um Holtavörðuheiði til Hrútafjarðar.
Stærð
1875,6 km2
Hlutfall lands: 94%
Hlutfall fersks vatns: 6%
Svæðislýsing
Mjög víðáttumikil og vel gróin heiðalönd, rík af mýrum, vötnum, tjörnum og lækjum. Lífríkt vatnakerfi, fengsæl fiskivötn og fjölbreytt fuglalíf. Einhver víðfeðmustu votlendi til heiða á landinu, rík af tjarnastararflóum, starungsmýrum, runnamýrum, brokflóum, hengistararflóum og gulstararflóum. Landi hefur ekki verið raskað af virkjunum, framræslu eða öðrum framkvæmdum. Sumarbeitilönd sauðfjár og lítilsháttar hrossa. Aðalútivist er silungsveiði.
Forsendur fyrir vali
Víðáttumikil votlendissvæði með runnamýravist á láglendi og starungsmýravist. Við Síká, um mitt vestanvert svæðið, er hverasvæði með mýrahveravist og móahveravist og jarðhitalækir streyma frá heitum uppsprettum. Æðplöntutegundin naðurtunga, sem bundin er við jarðhita, vex á svæðinu. Mikið fuglalíf er á Arnarvatnsheiði og er hún alþjóðlega mikilvægt varpsvæði álftar og himbrima. Álftamergðin á fjaðrafellitíma uppfyllir einnig alþjóðleg viðmið. Þá verpur þar einnig nokkuð af lómi og duggönd sem eru forgangstegundir.
Vistgerðir
Vistgerð | Km2 | % af heildarflatarmáli | |
---|---|---|---|
Land | Runnamýravist á láglendi | 4,81 | 1 |
Land | Starungsmýravist | 164,25 | 4 |
Land | Móahveravist | <0,01 | <1 |
Land | Mýrahveravist | <0,01 | <1 |
Ferskvatn | Jarðhitalækir |
Fuglar
Tegund | Árstími | Fjöldi (pör) | Ár | % af íslenskum stofni |
---|---|---|---|---|
Lómur | Varp | 25 | 2012 | 2 |
Himbrimi | Varp | *75 | 2016 | 15 |
Álft | Varp | 639 | 2012 | 6 |
Álft | Fellir | **1.236 | 2005 | 5 |
Duggönd | Varp | 61 | 2012 | 2 |
*Þekkt óðul | ||||
**Fuglar |
Sjá einnig ítarlegri umfjöllun um fuglasvæðið Arnarvatnsheiði.
Ógnir
Uppbygging þjónustu fyrir ferða- og veiðimenn, vegagerð, utanvegakstur, áform um vindmyllur, minniháttar sauðfjárbeit.
Aðgerðir til verndar
Takmarka framkvæmdir á svæðinu, skerpa á reglum er varða veiðar á fiski og fuglum, umferð og umgengni veiði- og ferðamanna sem og beitarstýring.
Núverandi vernd
Aðrar náttúruminjar | Númer |
---|---|
Arnarvatnsheiði og Tvídægra | 401 |
Kortasjá
Útgáfudagsetning
5. apríl 2018, uppfært 27. mars 2019, 26. maí 2020.