Laxárdalsheiði
Laxárdalsheiði
Svæðið er tilnefnt vegna fugla.
Laxárdalsheiði
![Laxárdalsheiði á Íslandskorti Laxárdalsheiði á Íslandskorti](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/b-hluti_smakort_2012_laxardalsheidi_v01_0.jpg?itok=AsOkVo7U)
![Miðvatn á Laxárdalsheiði Miðvatn á Laxárdalsheiði](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/vot-v_3-midvatn-laxardalsheidi_nk.jpg?itok=t-f-13GD)
Miðvatn á Laxárdalsheiði.
Mörk
Heiðalönd milli Hvammsfjarðar og Hrútafjarðar. Í norðri liggja mörkin við Hrútafell, Rjúpnafell og Dagmálabungu og í suðri um Laxárdalsháls, Vatnsfjall og Rjúpnafell.
Stærð
541,6 km2
Hlutfall lands: 97%
Hlutfall fersks vatns: 3%
Svæðislýsing
Á Laxárdalsheiði eru vel gróin heiðalönd og mikið af vötnum og öðru votlendi. Heiðin er fremur flatlend en fell og fjöll rísa nyrst og syðst á svæðinu. Veiði er víða í vötnum, bæði urriði og bleikja, og sauðfé gengur til beitar á heiðinni.
Forsendur fyrir vali
Alþjóðlega mikilvægt varpsvæði álftar og himbrima.
Fuglar
Tegund | Árstími | Fjöldi (pör) | Ár | % af íslenskum stofni |
---|---|---|---|---|
Himbrimi | Varp | *25 | 2016 | 5 |
Álft | Varp | 192 | 2012 | 2 |
*Þekkt óðul |
Sjá einnig ítarlegri umfjöllun um fuglasvæðið Laxárdalsheiði.
Ógnir
Fremur litlar, nema áform eru um vindorkugarð á Hróðnýjarstöðum sem er skammt frá svæðismörkum og Sólheimum í Laxárdal sem er inni á svæðinu.
Aðgerðir til verndar
Tryggja að búsvæði og farleiðir fugla verði ekki skert.
Núverandi vernd
Engin.
Kortasjá
Útgáfudagsetning
5. apríl 2018, uppfært 2. apríl 2019, 26. maí 2020.