Uppgræðslur
Uppgræðslur
L14.5
Eunis-flokkun
Nýr flokkur, tillaga. E5.16 Land reclamation grass fields.
Uppgræðslur
![Uppgræðslusvæði á Safnási við Blöndulón Uppgræðslusvæði á Safnási við Blöndulón](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/jg_safnas_blondulon_uppgraedsla.jpg?itok=LWArwnzt)
Uppgræðslusvæði á Safnási við Blöndulón. – Land reclamation grass field at Safnás, Blöndulón.
![Uppgrætt svæði við nýjan veg á Vestfjörðum Uppgrætt svæði við nýjan veg á Vestfjörðum](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/bm_vestfirdir_uppgraedsla.jpg?itok=8I3EZ2rv)
Uppgrætt svæði við nýjan veg á Vestfjörðum. – Reclamation area along a new road in the Westfjords.
Lýsing
Svæði þar sem grösum hefur verið sáð til uppgræðslu og áburði dreift, á melum, söndum, í vegköntum og öðru raski. Grös viðhaldast að jafnaði við endurtekna áburðargjöf en gisna og hverfa eftir að henni er hætt á nokkrum árum. Þar sem aðstæður eru góðar þróast gróður yfir í moslendi og mólendi er árin líða.
Útbreiðsla
Í einhverjum mæli um allt land en mest á mela-, sanda- og uppblásturssvæðum landsins þar sem landgræðsla er stunduð, svo sem í Árnessýslu, Rangárvallasýslu, Skaftafellssýslum, Suður-Þingeyjarsýslu og á hálendinu við Blöndulón og Hálslón.