Súr vötn
Súr vötn
V1.9
EUNIS-flokkun
Nýr flokkur, tillaga. C1.B Icelandic acidic lakes; fjörubelti – littoral zone: C3.64 Exposed unvegetated freshwater lake sands and shingles.
Súr vötn
![Súr vötn Súr vötn](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/sur-votn-graenavatn.jpg?itok=9u3kVgk7)
Grænavatn í Krýsuvík. Engin æðplanta hefur fundist í vatninu og er sýrustig vatnsins um pH 3. – Acidic lake in southwestern Iceland. No macrophytes are in the lake which has a pH value around 3.
![Súr vötn Súr vötn](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/sur-votn-viti.jpg?itok=YfLBkErc)
Víti í Öskju. – Acidic lake within Askja volcano, northeastern Iceland.
Lýsing
Gígvötn með hveravirkni í botni sem veldur því að sýrustig (pH) vatnsins er mjög lágt, þ.e. súrt. Aðeins tvö súr vötn eru þekkt, Grænavatn í Krýsuvík og Víti við Öskjuvatn. Vatnsbakkar eru brattir og ógrónir. Vötnin eru gruggug og sjóndýpi lítið, aðeins örfáir metrar hið mesta. Vötnin eru nokkuð djúp; Grænavatn er 45 m og Víti er talið um 8 m.
Vatnagróður
Fáar rannsóknir hafa verið gerðar á lífríki súrra vatna. Tegundafábreytni einkennir vötnin og æðplöntur eru ekki til staðar, líklega vegna lágs sýrustigs (pH) og gruggs. Fundist hafa botnlægir grænþörungar og smásæir svifþörungar og hugsanlega geta þrifist þar aðrar lífverur sem aðlagaðar eru þessu sérstaka umhverfi, t.d. örverur.
Botngerð
Möl og fíngert set.
Efnafræðilegir þættir
Styrkur fosfórs(P), niturs (N) og blaðgrænu er óþekktur. Sýrustig (pH) vatns er lágt (pH 3) og rafleiðni er há, um 800 µS/cm í Grænavatni og 1325 µS/cm í Víti. Einnig getur vatnshiti verið hærri en gengur og gerist vegna jarðhita.
Miðlunargerð vatnasviðs
Á hriplekum (2100) og treglekum (2200) svæðum.
Fuglar
Ekkert fuglalíf að staðaldri.
Útbreiðsla
Finnst á virku gosbeltum landsins, á há- og láglendi. Á Íslandi eru aðeins þekkt tvö súr vötn, Grænavatn og Víti.
Verndargildi
Hátt.
![Útbreiðslukort súr vötn Útbreiðslukort súr vötn](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/kort_v1.9_survotn.jpg?itok=lEKYy-OI)
Útbreiðsla súrra vatna. Flatarmál er um 0,08 km2, sem er <0,01% af heildarflatarmáli stöðuvatna. – There are only two acidic lakes known in Iceland: Grænavatn in Krýsuvík and Víti in Askja volcano. Their total area is estimated 0.08 km2 <0.01% of Icelandic lakes.