Papafjörður–Vigur
Papafjörður–Vigur
Svæðið er tilnefnt vegna sela.
Papafjörður–Vigur
![Papafjörður–Vigur á Íslandskorti Papafjörður–Vigur á Íslandskorti](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/stadreyndarsidarselir_papafjordur-vigur_kort_543x362px_v01.jpg?itok=a19ww6gP)
![Vigur og Papafjörður Vigur og Papafjörður](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/papafjordur-vigur-sth.jpg?itok=TrcbTLpI)
Vigur í forgrunni og Papafjörður í fjarska.
Mörk
Svæðið nær til sellátra í Papafirði, á skerjum utan við Papós og á eyjunni Vigur sem liggur 2,5 km frá fjörunni að Seleyri.
Stærð
34,1 km2
Hlutfall lands: 2%
Hlutfall fjöru: 22%
Hlutfall sjávar: 72%
Hlutfall fersks vatns: 4%
Svæðislýsing
Landselur og útselur kæpa í Papafirði ásamt skerjum þar fyrir utan og á eynni Vigur sem liggur 2,5 km utan við ósa Jökulsár í Lóni.
Forsendur fyrir vali
Á svæðinu eru þekkt landselslátur þar sem fjöldi sela hefur verið yfir 400 og allt að 25,3% af öllum selum Suðurlands. Landsel hefur fækkað um 77,8% á svæðinu frá 1980.
Selir
Tegund | Lægsti fjöldi* | Hæsti fjöldi* | Hæsta % af Suðurlandsstofni |
Hæsta % af íslenskum stofni |
Núverandi % af íslenskum stofni |
---|---|---|---|---|---|
Landselur | 16 (2006) | 425 (1985) | 25,3 (1989) | 4,6 (1989) | 1,2 (2018) |
*Árin 1980–2018 |
Ógnir
Þættir sem taldir eru geta haft áhrif á fækkun sela eru veiðar, þar af beinar veiðar og hjáveiðar, og truflun.
Aðgerðir til verndar
Brýnt er að tryggja vernd sela í látrum við ósa Jökulsár í Lóni, á eynni Vigur og nærliggjandi grunnsævi þar sem fæðuöflun fer fram.
Núverandi vernd
Aðrar náttúruminjar | Númer |
---|---|
Fjalllendið utan Skarðsdals | 653 |
Kortasjá
Útgáfudagsetning
3. desember 2020.