Língresis- og vingulsvist
Língresis- og vingulsvist
L9.6
Eunis-flokkun
E1.7221 Boreo-subalpine Agrostis grasslands.
Língresis- og vingulsvist
![Língresis- og vingulsvist Língresis- og vingulsvist](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/lingresis-1-2.jpg?itok=AjC-OdvN)
Língresis- og vingulsvist í brekku sunnan við Hólavatn í Eyjafirði. Gróskumikið land með hálíngresi, snarrótarpunti, túnvingli og gulmöðru. Gróðursnið EY-034-01. – Boreo-subalpine Agrostis grassland in northern Iceland.
![Língresis- og vingulsvist Língresis- og vingulsvist](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/lingresis-2-2.jpg?itok=VRAZS6aw)
Língresis- og vingulsvist í Hólamýri á framræstu landi í Hrepphólum í Hrunamannahreppi. Ríkjandi tegundir æðplantna eru hálíngresi, snarrótarpuntur og mýrastör. Gróðursnið SL-43-01. – Boreo-subalpine Agrostis grassland in southern Iceland.
Lýsing
Gróskumikið graslendi vaxið hálíngresi, túnvingli og fleiri graslendistegundum. Vistgerðin finnst á deigu til þurru landi í brekkum og brekkurótum en einnig á flatlendi, m.a. á framræstu landi. Jarðvegur er þykkur og frjósamur. Land er mjög vel gróið, gróður í meðallagi hár, æðplöntur eru ríkjandi og mosi nokkur í sverði. Mjög lítið er um fléttur.
Plöntur
Vistgerðin er miðlungi rík af æðplöntutegundum en frekar fátæk af mosum. Ríkjandi tegundir æðplantna í vistgerðinni eru hálíngresi (Agrostis capillaris) og túnvingull (Festuca rubra subsp. richardsonii). Algengastir mosa eru engjaskraut (Rhytidiadelphus squarrosus), tildurmosi (Hylocomium splendens) og móasigð (Sanionia uncinata) en af fléttum finnst helst himnuskóf (Peltigera membranacea).
Jarðvegur
Áfoksjörð er ríkjandi en einnig finnst lífræn jörð. Jarðvegur er þurr til lítilsháttar deigur, þykkur, miðlungi ríkur af kolefni og sýrustig er frekar lágt.
Fuglar
Ríkt fuglalíf, algengustu varpfuglar eru þúfutittlingur (Anthus pratensis), hrossagaukur (Gallinago gallinago), lóuþræll (Calidris alpina), spói (Numenius phaeopus) og stelkur (Tringa totanus).
Líkar vistgerðir
Stinnastararvist, blómgresisvist og bugðupuntsvist.
Útbreiðsla
Mjög algeng og útbreidd vistgerð sem finnst á láglendi í öllum landshlutum, mest á hlýrri svæðum landsins á Suðurlandi og Mið-Norðurlandi.
Verndargildi
Hátt. Vistgerðin er á lista Bernarsamningsins frá 2014 yfir vistgerðir sem þarfnast verndar.
![Língresis- og vingulsvist Língresis- og vingulsvist](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/kort_l9.6_lingresisogvingulsvist.jpg?itok=PxjnmXmc)
Língresis- og vingulsvist er útbreidd en hún finnst í 59% landsreita. Flatarmál hennar reiknast um 1.200 km2, óvissa nokkur, óglögg skil við líkar vistgerðir. – The habitat type is common in Iceland and is found within 59% of all grid squares. Its total area is estimated 1,200 km2.
![Gróðurþekja, tegundafjöldi, raki, ríkjandi tegundir og fleiri tölulegar upplýsingar í língresis- og vingulsvist Gróðurþekja, tegundafjöldi, raki, ríkjandi tegundir og fleiri tölulegar upplýsingar í língresis- og vingulsvist](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/graf_l9.6_lingresisogvingulsvist.jpg?itok=0AgZzaL4)
Gróðurþekja æðplantna, mosa og fléttna. Sýnd eru meðaltöl fyrir heildarþekju og þekju ±staðalskekkja. Innan sviga er fjöldi mælinga. Grænar súlur sýna spönn allra vistgerða á landi. – Average total % cover of all plant groups (Heild), vascular plants (Æðplöntur), bryophytes (Mosar) and lichens (Fléttur), shown with lines and numbers ± s.e., n within brackets; bars indicate range for all habitat types.
Tegundafjöldi á sniðum. Sýnd eru meðaltöl fyrir fjölda tegunda æðplanta, mosa og fléttna ±staðalskekkja (lóðrétt strik). Innan sviga er fjöldi mælinga. Grænar súlur sýna spönn fyrir allar vistgerðir. – Average species richness of vascular plants, bryophytes and lichens, shown with lines and numbers ± s.e., n within brackets; bars indicate range for all habitat types.
Raki í jarðvegi. Sýnd er tíðni rakaflokka; forblautt, blautt, deigt og þurrt. Innan sviga er fjöldi mælinga. – Soil moisture classes %, n within brackets; classes are Very wet (Forblautt), Wet (Blautt), Moist (Deigt) and Dry (Þurrt).
Ríkjandi tegundir og tegundahópar í vistgerðinni. Sýnd er þekja og röð. – Order and % cover of dominant species.
Ýmsar niðurstöður: Gróðurhæð (Gh); Jarðvegsþykkt (Jþ); Kolefni í jarðvegi (C%); Sýrustig í jarðvegi (pH); Halli lands (H); Grýtniþekja (Gr). Sýnd eru meðaltöl ±staðalskekkja (lóðrétt strik). Innan sviga er fjöldi mælinga. Skyggðar súlur sýna spönn viðkomandi breytu fyrir allar vistgerðir. – Various results: Average vegetation height (Gh) and soil depth (Jþ), soil carbon (C%) and pH, land slope (H) and surface rocks (Gr) shown with lines and numbers ± s.e., n within brackets; bars indicate range for all habitat types.