Fjallahveravist
Fjallahveravist
L12.3
Eunis-flokkun
Nýr flokkur, tillaga. C2.1432 Geothermal alpine habitats.
Fjallahveravist
![Fjallahveravist Fjallahveravist](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/fjallahveravist-_mg_8253.jpg?itok=P-3JEjF8)
Fjallahveravist í Austur-Reykjadölum við Torfajökul í Rangárvallasýslu. Mosi dafnar í raka og hita. Mest áberandi eru æðplöntutegundirnar mýrfjóla og fjallapuntur en einnig dafna jarðhitategundirnar grámygla og naðurtunga. Jarðvegshiti er 30°C. – Geothermal alpine habitat in southern highlands.
![Fjallahveravist Fjallahveravist](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/fjallahveravist-img_1711.jpg?itok=EuBGp-nQ)
Fjallahveravist í Vestur-Reykjadölum við Torfajökul í Rangárvallasýslu. Af æðplöntum er einna mest áberandi mýradúnurt, hrossanál og skriðlíngresi. Naðurtunga vex þar sem þurrara er. Jarðvegshiti er 33°C. – Geothermal alpine habitat in southern highlands.
Lýsing
Deiglendis- og dýjablettir í brekkurótum, hvilftum og dældum á hálendinu eða þar sem heitt vatn rennur frá uppsprettum og vatnshverum. Þegar ofar dregur í brekkum verður land þurrara og þar finnast gufu- og leirhverir. Víða má sjá snjódældaráhrif á gróðurfari. Gróðurþekja er að jafnaði órofin þar sem rakast er. Mosar eru áberandi í þekju en æðplöntur vaxa oft strjált.
Plöntur
Fjöldi tegunda er nokkur. Fjallapuntur (Deschampsia alpina) er ríkjandi æðplantna. Hitakæra tegundin laugasef (Juncus articulatus) einkennir vistgerðina ásamt skriðlíngresi (Agrostis stolonifera), mýradúnurt (Epilobium palustre) og mýrfjólu (Viola palustria). Grasvíðir (Salix herbacea) og blávingull (Festuca vivipara) vaxa þar sem þurrara er. Jarðhitategundin naðurtunga (Ophioglossum azoricum) finnst víða en grámygla (Gnaphalium uliginosum) mun sjaldnar. Nokkuð er um snjódældategundir og eru fjallasmári (Sibbaldia procumbens) og grámulla (Omalotheca supina) algengastar. Fjaðurgambri (Racomitrium elongatum), laugaslyðra (Gymnocolea inflata) og flaganaddur (Nardia scalaris) eru algengustu mosarnir ásamt dýjahnappi (Philonotis fontana). Algengustu fléttutegundirnar eru engjaskóf (Peltigera canina) og grábreyskja (Stereocaulon alpinum).
Jarðvegur
Fremur þunnur jarðvegur og er víða ummyndaður af hita. Undirlag er oftast melar og vikur eða áreyrar.
Jarðhiti á 10 cm dýpi
Á bilinu 15–56°C; meðaltal 27°C (n=73).
Fuglar
Lítið sem ekkert fuglalíf.
Útbreiðsla
Eingöngu á háhitasvæðum á miðhálendinu.
Verndargildi
Hátt.
![Fjallahveravist Fjallahveravist](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/kort_l12.3_fjallahveravist.jpg?itok=X7-ovKGT)
Fjallahveravist fannst í 12% reita þar sem jarðhitavistgerðir voru rannsakaðar. Flatarmál hennar reiknast um 5 km2, óvissa mikil. – The habitat type is found within 12% of all grid squares investigated. Its total area is estimated 5 km2.
Jarðhitategundir æðplantna – Geothermal vascular plant species within the habitat type | |
---|---|
Grámygla | Gnaphalium uliginosum |
Naðurtunga | Ophioglossum azoricum |
![Gróðurþekja, tegundafjöldi, raki, ríkjandi tegundir og fleiri tölulegar upplýsingar í fjallahveravist Gróðurþekja, tegundafjöldi, raki, ríkjandi tegundir og fleiri tölulegar upplýsingar í fjallahveravist](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/graf_l12.3_fjallahveravist_0.jpg?itok=YOxurpxb)
Fjöldi skráðra æðplantna, mosa og fléttna í vistgerðinni. – Total number of vascular plants (Æðplöntur), bryophytes (Mosar) and lichen species (Fléttur) within the habitat type.
Ríkjandi æðplöntur í vistgerðinni. – Dominant vascular plant species within the habitat type.