2. mars 2016. Guðbjörg R. Jóhannesdóttir: Landslag, fegurð og fagurfræði í ákvarðanatöku um náttúruvernd og nýtingu

Guðbjörg R. Jóhannesdóttir, aðjúnkt við listkennsludeild og hönnunar-og arkitektúrdeild Listaháskólans og nýdoktor við Heimspekistofnun Háskóla Íslands, flytur erindið „Landslag, fegurð og fagurfræði í ákvarðanatöku um náttúruvernd og nýtingu“ á Hrafnaþingi miðvikudaginn 2. mars kl. 15:15.
Erindið byggir á doktorsverkefninu „Íslenskt landslag: Fegurð og fagurfræði í ákvarðanatöku um umhverfismál.“ Í verkefninu er fjallað um hugtökin landslag og fegurð, um merkingu og gildi fagurferðilegra upplifana af landslagi og hlutverk slíkra gilda í ákvarðanatöku um umhverfismál. Fagurferðilegt gildi landslags hefur á síðustu áratugum ekki skipað stóran sess í ákvarðanatöku um náttúruvernd eða nýtingu þrátt fyrir að það sé eitt af mikilvægustu gildum sem íslensk náttúra býr yfir. Í erindinu verður sérstök áhersla lögð á að skoða stöðu fagurferðilegra gilda í kerfum ákvarðanatöku og hvernig bæta má þá stöðu.