18. janúar 2012. Sverrir Guðmundsson: Stjörnuskoðun að vori

Sverrir Guðmundsson, Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness

Sverrir Guðmundsson

Sverrir Guðmundsson, ritari Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness og stjörnufræðikennari, flytur erindi sitt um stjörnuskoðun að vori á Hrafnaþingi miðvikudaginn 18. janúar kl. 15:15.

Fjallað verður um það helsta sem sést á himninum fyrri hluta ársins, svo sem Karlsvagninn, Sjöstirnið, Óríon, tunglið og reikistjörnurnar en vorið 2012 er óvenju hentugt til reikistjörnuskoðunar. Einnig mun Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness verða kynnt stuttlega og fjallað um vaxandi vinsældir þessa áhugamáls.

Upptaka af erindinu misfórst.

Merkúr, Venus, Júpíter og Sjöstirnið 27. feb. 2012
Mynd: Stellarium

Merkúr, Venus, Júpíter og Sjöstirnið að kvöldi 27. febrúar 2012. Mynd úr störnufræðiforritinu Stellarium.

Reikistjarnan Mars í ljónsmerkinu 27. feb. 2012
Mynd: Stellarium

Reikistjarnan Mars í ljónsmerkinu að kvöldi 27. febrúar 2012. Mynd úr stjörnufræðiforritinu Stellarium.