Bakkaaugnfró (Euphrasia arctica)
Bakkaaugnfró (Euphrasia arctica)
![Mynd af Bakkaaugnfró (Euphrasia arctica) Mynd af Bakkaaugnfró (Euphrasia arctica)](https://myndir.ni.is/floraisl/hapl/euphrarc1b.jpg)
![Mynd af Bakkaaugnfró (Euphrasia arctica) Mynd af Bakkaaugnfró (Euphrasia arctica)](https://myndir.ni.is/floraisl/hapl/euphrarc2b.jpg)
Útbreiðsla
Afar sjaldgæf (Hörður Kristinsson 1998).
Lýsing
Lágvaxin jurt (5–15 sm) með stutta stöngulliði og nær alveg fjólublá blóm við fjórða til áttunda blaðpar.
Blað
Stöngull ógreindur eða mikið greindur, stuttir stöngulliðir. Blöð hárlaus eða nokkuð kirtilhærð. Neðsta stoðblað oftast stærra en hin venjulegu sem ofar eru (Lid og Lid 2005).
Blóm
Neðstu blómin sitja við fjórða til áttunda blaðpar (Lid og Lid 2005). Blómin 8–9 mm á lengd, nær alveg fjólublá. Bikarinn nær eingöngu með kirtilhárum (Hörður Kristinsson 1998).
Greining
Líkist augnfró en blómin eru nær alveg fjólublá og bikarinn ásamt efstu laufblöðunum nær eingöngu með kirtilhárum, blómin einnig heldur stærri, 8–9 mm á lengd.
Höfundur
Var efnið hjálplegt? Aftur upp
Takk fyrir!