Dvergstör (Carex glacialis)
Dvergstör (Carex glacialis)
![Mynd af Dvergstör (Carex glacialis) Mynd af Dvergstör (Carex glacialis)](https://myndir.ni.is/floraisl/hapl/carglaci1g.jpg)
![Mynd af Dvergstör (Carex glacialis) Mynd af Dvergstör (Carex glacialis)](https://myndir.ni.is/floraisl/hapl/carglaci2g.jpg)
Útbreiðsla
Hún er nokkuð algeng víða á hinu landræna svæði á austanverðu Norðurlandi. Dvergstörin vex frá láglendi upp í 800 m hæð, hæst skráð í fjöllum við Glerárdal við Akureyri og sunnan í Illviðrahnjúkum við Hofsjökul í um 900 m hæð (Hörður Kristinsson - floraislands.is).
Búsvæði
Uppi á þurrum klettaásum, brúnum og bungum í malarkenndum jarðvegi og mójarðvegi.
Lýsing
Mjög lágvaxin stör (4–8 sm) með stutt toppax með karlblómum og nokkur fáblóma kvenöx. Blómgast í júní–júlí.
Blað
Vex í litlum, þéttum toppum. Stráin stutt, sívöl. Blöðin þéttstæð, um 1 mm á breidd, grópuð eða kjöluð, snarprend, þrístrend í endann.
Blóm
Karlblómin í stuttu toppaxi. Kvenblómin í nokkrum, fáblóma, þéttstæðum kvenöxum. Axhlífar brúnleitar með breiðum himnufaldi. Hulstrin mislit, græn og brúnleit, gljáandi, bústin með alllangri trjónu. Frænin þrjú.
Greining
Auðþekkt í blóma. Heimkynnin minna á móastör og blaðtoppar einnig en dvergstörin hefur mörg öx og styttri og beinvaxnari blöð.
Höfundur
Var efnið hjálplegt? Aftur upp
Takk fyrir!