Straumönd (Histrionicus histrionicus)
Straumönd (Histrionicus histrionicus)
Útbreiðsla
Straumönd verpur hvergi í Evrópu nema á Íslandi. Auk þess eru stofnar á Grænlandi, í Norður-Ameríku og Austur-Asíu. Hún er hér allalgeng og tiltölulega útbreiddur varpfugl við straumvötn, bæði á láglendi og hálendi. Dvelst með ströndum fram á veturna og er þéttleiki hennar mestur í útfjörðum og á annnesjum (sjá kort). Straumönd er talin alger staðfugl.
Stofn
Varpstofn straumandar er talinn 3.000−5.000 pör og byggist það á fjölda straumanda á sjó veturna 1998−2001 (14.000 fuglar; Arnþór Garðarsson og Þorkell Lindberg Þórarinsson 2003). Þéttleiki straumanda í vetrarfuglatalningum er mestur í útfjörðum og á annnesjum (sjá kort). Straumönd er talin alger staðfugl.
Válisti
LC (ekki í hættu)
Ísland | Evrópuválisti | Heimsválisti |
---|---|---|
LC | LC | LC |
Forsendur flokkunar
Kynslóðalengd (IUCN): 7,9 ár
Tímabil sem mat miðast við (3 kynslóðir): 1990–2014
Vísitala straumanda í vetrarfuglatalningum Náttúrufræðistofnunar á landsvísu var óbreytt á viðmiðunartímabilinu (1990–2014) (sjá graf). Á Laxá í Mývatnssveit fækkaði steggjum 43% frá 1996 til 2017 og þá langmest á seinni hluta tímabilsins (Náttúrurannsóknarstöðin við Mývatn). Eins má greina hægfara fækkun straumanda á Svartá í Bárðardal og Laxá í Laxárdal í en vetrarvístala straumanda við Tjörnes sýnir öra fjölgun á þessum tíma og síðan stöðnun (Yann Kolbeinsson o.fl. 2018). Straumendur hafa einnig verið taldar að vorlagi á Straumfjarðará á Snæfellsnesi af og til síðan 1997 og benda þær talningar ekki til langtímabreytinga (Jóhann Óli Hilmarsson, pers. uppl,). Straumönd er því ekki flokkuð á válista og stofninn auk þess tiltölulega stór. Sjá nánar graf.
Á Válista 2000 var straumönd flokkuð eftir eldra kerfi IUCN sem tegund í yfirvofandi hættu (LR, cd = NT) en á þeim tíma lá ekki fyrir gott mat á stofninum.
Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2000: Straumönd var flokkuð sem tegund í yfirvofandi hættu (LR, nú NT).
Verndun
Straumönd er friðuð samkvæmt lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.
Mikilvæg svæði
Þrenns konar mikilvæg svæði koma til álita fyrir straumönd, þ.e. varpsvæði, vetrarstöðvar og fellistöðvar. Mörg svæði koma væntanlega til greina en nákvæm skráning liggur ekki fyrir nema á hluta þeirra.
Flestar straumendur verpa dreift með ám en þó er hægt að tala um þéttbýli á allmörgum stöðum, einkum þar sem ár falla úr stöðuvötnum. Það langmesta er við Laxá í Mývatnssveit og er það jafnframt eina varpsvæðið sem telja má með vissu alþjóðlega mikilvægt hér á landi (sjá töflu 1).
Á grundvelli vel skráðrar vetrarútbreiðslu má greina a.m.k. átta mikilvæg straumandarsvæði þar sem um fjórðungur stofnsins heldur til (sjá töflu 2).
Fjaðrafellistöðvar straumandar eru þekktar í grófum dráttum og eru þær allar á stöðum sem jafnframt eru vetrarstöðvar en fuglarnir virðast þó einkum fella fjaðrir á annesjum á Vestfjörðum og Norðurlandi (Arnþór Garðarsson, óbirt heimild).
A4 i: Evrópa (Ísland/Grænland) = 240 fuglar/birds; 80 pör/pairs (BirdLife 2016c)
B1 i: Ísland = 140 fuglar/birds; 47 pör/pairs (BirdLife 2016c)
Töflur
Tafla 1: Meðalfjöldi straumanda á Laxá í Mývatnssveit að vorlagi – Mean spring number of Histrionicus histrionicus at Laxá river in the Mývatn area in Iceland.*
Svæði Area |
Svæðisnúmer Area code |
Árstími Season |
Fjöldi (pör) Number (pairs) |
Ár Year |
% af íslenskum stofni % of Icelandic popul. |
Alþjóðlegt mikilvægi International importance |
---|---|---|---|---|---|---|
Mývatn–Laxá | VOT-N_11 | B | 258 | 2006–2015 | 6,5 | A4i, B1i |
*byggt á Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn, óbirt gögn |
Tafla 2: Mikilvægar vetrarstöðvar straumanda á Íslandi – Important winter sites of Histrionicus histrionicus.*
Svæði Area |
Svæðisnúmer Area code |
Árstími Season |
Fjöldi (fuglar) Number (birds) |
Ár Year |
% af íslenskum stofni % of Icelandic popul. |
Alþjóðlegt mikilvægi International importance |
---|---|---|---|---|---|---|
Kalmanstjörn–Garðskagi | FG-V_1 | W | 153 | 1999 | 1,1 | B1i |
Kjalarnes | FG-V_5 | W | 194 | 2000 | 1,4 | B1i |
Breiðafjörður | FG-V_11 | W | 1.626 | 1999–2001 | 11,6 | A4i, B1i |
Jökulfirðir1 | FG-V_12 | W | 613 | 2003 | 4,4 | A4i, B1i |
Skagi** | VOT-N_5 | W | 260 | 1999 | 1,9 | A4i, B1i |
Fljót–Siglufjörður | FG-N_1 | W | 327 | 1999 | 2,3 | A4i, B1i |
Tjörnes | FG-N_3 | W | 328 | 1999 | 2,3 | A4i, B1i |
Berufjarðarströnd | FG-A_1 | W | 228 | 1999 | 1,6 | B1i |
Alls–Total | 3.729 | 26,6 | ||||
*byggt á Arnþór Garðarsson og Þorkell Lindberg Þórarinsson 2003 1Náttúrustofa Vestfjarða, óbirt gögn/unpubl. data **Skagaströnd (Bakki–Tjarnarland) |
English summary
The breeding population of Histrionicus histrionicus in Iceland is estimated 3,000‒5,000 pairs, based on winter surveys of 14,000 birds. It is widely dispersed as a breeder, hence only one breeding area is designated IBA, with 6,5% of the pairs. Eight winter areas are designated IBAs, holding 27% of the population.
Icelandic Red list 2018: Least concern (LC), downlisted from NT in 2000.
Heimildir
Arnþór Garðarsson og Þorkell Lindberg Þórarinsson 2003. Útbreiðsla og fjöldi straumanda á Íslandi að vetrarlagi. Bliki 23: 5–20.
BirdLife International 2016. IUCN Red List for birds. http://www.birdlife.org [skoðað 20.10.2016].
Yann Kolbeinsson, Árni Einarsson, Arnþór Garðarsson, Aðalsteinn Örn Snæþórsson og Þorkell Lindberg Þórarinsson 2018. Ástand fuglastofna í Þingeyjarsýslum árið 2017. Náttúrustofa Norðausturlands og Náttúrurannsóknarstöðin við Mývatn. NNA-1802.
Höfundur
Var efnið hjálplegt? Aftur upp
Takk fyrir!