Almennt
Trönufuglar af tveim ættum hafa sést á Íslandi, trönuætt og relluætt. Ein tegund af trönuætt er flækingsfugl á landinu. Keldusvín af relluætt var varpfugl hér á landi fram yfir miðja síðustu öld en telst nú til flækingsfugla. Önnur tegund, bleshæna, hefur orpið hér en ekki fest í sessi sem varpfugl. Sex aðrar tegundir eru hér flækingar, þrjár frá Evrópu, þrjár frá Norður-Ameríku.
Höfundur
Erling Ólafsson 3. júlí 2018.
Var efnið hjálplegt?
Aftur upp