Mynd: Daníel Bergmann
Margæs (Branta bernicla).
Mynd: Daníel Bergmann
Margæs (Branta bernicla).
Meðaltal margæsa sem sást á hverjum stað um miðjan maí 1990−2010 – Mean number of Branta bernicla at each site in mid-May 1990−2010.
Útbreiðsla
Margæsir verpa í heimskautalöndunum nánast allt í kringum norðurhvel jarðar. Deilitegundin B.b. hrota verpur í NA-Kanada og kemur hér við vor og haust (Faxaflói–Breiðafjörður; sjá kort) á leið sinni til og frá vetrarstöðvum á Bretlandseyjum, aðallega Írlandi.
Stofn
Þessi stofn taldi um 37.000 fugla haustið 2016 (Kendrew Colhoun, óbirt heimild) en fjöldinn veltur á varpárangri sem er afar misjafn frá ári til árs.
Válisti
LC (ekki í hættu)
Ísland |
Evrópuválisti |
Heimsválisti |
---|
LC |
LC |
LC |
Forsendur flokkunar
Kynslóðalengd (IUCN): 10,9 ár
Tímabil sem mat miðast við (3 kynslóðir): 1984–2017
Margæsastofninn hefur vaxið á viðmiðunartímabilinu og er auk þess það stór að hann telst ekki í hættu (LC).
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2000: Margæs var ekki í hættu (LC).
Verndun
Margæs er friðuð samkvæmt lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.
Mikilvæg svæði
Að minnsta kosti fimm svæði eru alþjóðlega mikilvæg fyrir margæsir sem fara hér um og nær allar margæsir dveljast á mikilvægum fuglasvæðum á ferð sinni um landið, bæði á vorin (sjá töflu; Arnþór Garðarsson og Guðmundur A. Guðmundsson 1997) og haustin (Náttúrufræðistofnun, óbirt gögn).
IBA viðmið – IBA criteria:
A4 i: Evrópa/NA-Kanada = 2.700 fuglar/birds (Wetlands International 2016)
B1 i: NA-Kanada/Grænland/Ísland/Bretlandseyjar = 370 fuglar/birds (Wetlands International 2016, uppfært/updated)
Töflur
Meðalfjöldi margæsa á mikilvægum viðkomusvæðum á Íslandi, 1990−2010 – Number of Branta bernicla in important staging areas in Iceland in 1990−2010.*
Svæði Area |
Svæðisnúmer Area code |
Árstími Season |
Fjöldi (fuglar) Number (birds) |
Ár Year** |
% af íslenskum stofni % of Icelandic popul. |
Alþjóðlegt mikilvægi International importance |
---|
Álftanes–Skerjafjörður |
FG-V_2 |
P |
2.473 |
1990-2010 |
8,8 |
A4i, B1i |
Blikastaðakró–Leiruvogur |
FG-V_4 |
P |
397 |
1990-2010 |
1,4 |
B1i |
Hvalfjörður |
FG-V_6 |
P |
1.431 |
1990-2010 |
5,1 |
B1i |
Blautós |
FG-V_7 |
P |
1.354 |
1990-2010 |
4,8 |
B1i |
Grunnafjörður |
FG-V_8 |
P |
2.927 |
1990-2010 |
10,5 |
A4i, B1i |
Borgarfjörður–Löngufjörur |
FG-V_10 |
P |
5.071 |
1990-2010 |
18,1 |
A4i, B1i |
Breiðafjörður |
FG-V_11 |
P |
15.522 |
1990-2010 |
55,4 |
A4i, B1i |
Alls–Total |
|
|
29.175 |
|
(100) |
|
*Byggt á Guðmundur A. Guðmundsson og Arnþór Garðarsson, óbirt heimild **Talið/Surveyed: 1990, 1995, 2005, 2006, 2008, 2010 |
English summary
The Branta bernicla hrota population passing through Iceland numbers 35,000 birds in 2017. Five areas are designated IBAs, holding almost all af the population.
Icelandic Red list 2018: Least concern (LC) as in 2000.
Heimildir
Arnþór Garðarsson og Guðmundur A. Guðmundsson 1997. Numbers of Light-bellied Brent Geese (Branta bernicla hrota) staging in Iceland in spring. Wildfowl 47: 68−72.
Wetlands International 2016. Waterbird Population Estimates. http://wpe.wetlands.org/search [skoðað 26. nóvember 2016]
Var efnið hjálplegt?
Aftur upp