30. nóvember 2016. Guðmundur Halldórsson: Áhrif loftslagsbreytinga á smádýr í skógrækt og landgræðslu
30. nóvember 2016. Guðmundur Halldórsson: Áhrif loftslagsbreytinga á smádýr í skógrækt og landgræðslu
30. nóvember 2016. Guðmundur Halldórsson: Áhrif loftslagsbreytinga á smádýr í skógrækt og landgræðslu
![Guðmundur Halldórsson Guðmundur Halldórsson](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/gudmundur_halldorsson.jpg?itok=8Xs9vBq4)
Guðmundur Halldórsson
Guðmundur Halldórsson rannsóknastjóri hjá Landgræðslu ríkisins flytur erindið „Áhrif loftslagsbreytinga á smádýr í skógrækt og landgræðslu“ á Hrafnaþingi miðvikudaginn 30. nóvember kl. 15:15.
Áhrifa loftslagsbreytinga er þegar farið að gæta að verulegu marki í íslenskum vistkerfum. Í fyrirlestrinum verður fjallað um áhrif þessara breytinga á smádýr sem lifa á trjám og öðrum gróðri sem notaður er í landgræðslu og skógrækt hér á landi. Fjallað verður um landnám nýrra tegunda sem lifa á trjágróðri og breytingar á skaðsemi og faröldrum tegunda sem fyrir voru. Að lokum verður reynt að spurningunni um hver sé líkleg framtíðarþróun á þessu sviði og hvaða möguleikar séu á að bregðast við því.
![Skógburstalirfa (Orgyia antiqua) Skógburstalirfa (Orgyia antiqua)](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/gh_skogburstalirfa.jpg?itok=D92iefy7)
Skógburstalirfa