28. mars 2012. Borgþór Magnússon: Gróðurframvinda í lúpínubreiðum endurmetin
28. mars 2012. Borgþór Magnússon: Gróðurframvinda í lúpínubreiðum endurmetin
28. mars 2012. Borgþór Magnússon: Gróðurframvinda í lúpínubreiðum endurmetin
![Borgþór Magnússon Borgþór Magnússon](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/borgthor.jpg?itok=szZ7__kJ)
Borgþór Magnússon
Borgþór Magnússon plöntuvistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands flytur erindi sitt „Gróðurframvinda í lúpínubreiðum“ endurmetin á Hrafnaþingi miðvikudaginn 28. mars kl. 15:15.
Sumarið 2011 var farið á 15 svæði á landinu þar sem gróðurframvinda í lúpínubreiðum hafði verið rannsökuð um 20 árum áður. Á svæðunum hefur lúpína vaxið í 35–60 ár og breiðst út við mismunandi skilyrði. Reynt var að endurtaka mælingar á sömu stöðum til að fá fyllri mynd af endingu lúpínu og gróðurbreytingum sem henni fylgja. Fyrstu niðurstöður sýna að gróðurframvinda í lúpínubreiðum er mjög misjöfn eftir landshlutum og staðháttum eins og fram kom í fyrri rannsóknum. Sumarið 2011 voru komin fram eindregnari merki en áður um hörfun lúpínunnar á elstu vaxtarstöðum hennar á suðvestanverðu landinu. Dæmi um það eru gamlar breiður í Heiðmörk þar sem lúpína tók að gisna verulega eftir 25–30 ár í landi. Í Múlakoti í Fljótshlíð var lúpína hins vegar enn til staðar og gróskuleg eftir 60 ára veru. Rannsóknirnar 2011 staðfesta að lúpína breiðist auðveldlega inn á mólendi á Norðurlandi og gjörbreytir gróðurfari þar. Úrkoma getur takmarkað vöxt lúpínu norðanlands og finnur hún betri vaxtarskilyrði í mólendi en á þurrum melum. Í mólendinu myndar hún því þéttari og langlífari breiður og verður framvinda þar allt önnur en á melum á sömu stöðum. Í Hrísey á Eyjafirði hefur skógarkerfill lagt undir sig lúpínubreiður á undanförnum árum. Þar gafst í fyrsta sinn færi á að kanna gróður í kerfilsbreiðum og fá vísbendingar um hvers er að vænta í landi sem skógarkerfill leggur undir sig.
Í erindinu verður í máli og myndum greint frá helstu niðurstöðum sem liggja fyrir eftir sumarið 2011 og breytingum sem orðið hafa á rannsóknasvæðunum á síðustu 20 árum.
![Lúpína hörfar af landi í Heiðmörk Lúpína hörfar af landi í Heiðmörk](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/bm_Heidmork.jpg?itok=geNLFY_P)
Lúpína hörfar af landi í Heiðmörk sem hún nam í kringum 1970. Myndast hefur gisið graslendi með gulmöðru og mosum í sverði.
![Lúpína hörfar í Þjórsárdal Lúpína hörfar í Þjórsárdal](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/bm_Thjorsardalur.jpg?itok=L2fWONTF)
Lúpína hörfar af landi á vikrunum í Þjórsárdal þar sem henni var dreift fyrst um 1970.
![Lúpína á Hveravöllum í Reykjahverfi Lúpína á Hveravöllum í Reykjahverfi](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/bm_Hveravellir.jpg?itok=l1bGxoAU)
Lúpína leggur undir sig lyngmóa á Hveravöllum í Reykjahverfi.
![Skógarkerfill tekur við af lúpínu í Hrísey Skógarkerfill tekur við af lúpínu í Hrísey](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/bm_Hrisey.jpg?itok=BR0jY48R)
Skógarkerfill tekur við af lúpínu í Hrísey.