Drangey
Drangey
Svæðið er tilnefnt vegna fugla.
Drangey
![Drangey á Íslandskorti Drangey á Íslandskorti](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/b-hluti_smakort_4008_drangey_v01_0.jpg?itok=yUJyYsoB)
![Drangey Drangey](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/sf-n_2-drangey_mg.jpg?itok=6lDkjZdl)
Drangey.
Mörk
Eyja í Skagafirði ásamt 1 km verndarjaðri umhverfis.
Stærð
6,6 km2
Hlutfall lands: 3%
Hlutfall fjöru: 1%
Hlutfall sjávar: 95%
Svæðislýsing
Þverhnípt eyja með grasi vaxinn koll. Eggja- og lundatekja er stunduð árlega og töluverður ferðamannastraumur er til Drangeyjar.
Forsendur fyrir vali
Mikið fuglalíf er í Drangey og telst hún alþjóðlega mikilvæg sjófuglabyggð og auk þess sérstaklega mikilvæg fyrir fyrir langvíu, álku og lunda.
Fuglar
Tegund | Árstími | Fjöldi (pör) | Ár | % af íslenskum stofni |
---|---|---|---|---|
Langvía | Varp | 7.099 | 2007 | 1 |
Álka | Varp | 2.116 | 2007 | 1 |
Lundi | Varp | 33.900 | 2014 | 2 |
Sjá einnig ítarlegri umfjöllun um sjófuglabyggðina Drangey.
Ógnir
Ferðamennska, eggjataka og veiðar.
Aðgerðir til verndar
Setja þarf umgengnisreglur og tryggja að nýting hlunninda verði áfram sjálfbær. Stýra umferð ferðamanna um eyjuna.
Núverandi vernd
Aðrar náttúruminjar | Númer |
---|---|
Drangey | 420 |
Kortasjá
Útgáfudagsetning
5. apríl 2018, uppfært 26. maí 2020.