Öngulbrjótsnef
Öngulbrjótsnef
Svæðið er tilnefnt vegna fjöruvistgerða.
Öngulbrjótsnef
![Öngulbrjótsnef á Íslandskorti Öngulbrjótsnef á Íslandskorti](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/b-hluti_smakort_7032_ongulbrjotsnef_v01_0.jpg?itok=Tvu0U7U1)
![Öngulsbrjótsnef Öngulsbrjótsnef](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/ongulbrjotsnef-sk.jpg?itok=4D0aKa9Z)
Kirkjuvogsbás við Öngulbrjótsnef.
Mörk
Fjara og grunnsævi vestan á Reykjanesi, frá Kirkjuvogsbás undir Valahnúkum norður að Mölvíkurboða við Litlu-Sandvík.
Stærð
1,3 km2
Hlutfall lands: <1%
Hlutfall fjöru: 35%
Hlutfall sjávar: 65%
Svæðislýsing
Fjörubeðurinn er að mestu úfnar hraunklappir, með glufum og skorningum, en á köflum er möl og stórgrýti. Brimasemi er talsverð. Mosavaxin eða lítt gróin hraun eru ofan fjörunnar. Útivist er stunduð á svæðinu og orkuvinnsla í næsta nágrenni.
Forsendur fyrir vali
Sunnan við Öngulbrjótsnef er klóþangsfjara; annars staðar er grófgerður og úfinn fjörubeðurinn ríkur af skjólsælum glufum og skorningum sem veitir lífverum skjól, þrátt fyrir talsvert brim og að ríkjandi fjörugerðir séu brimasamar hnullunga- og hrúðurkarlafjörur.
Vistgerðir
Vistgerð | Km2 | % af heildarflatarmáli | |
---|---|---|---|
Fjara | Klóþangsfjörur | 0,04* | <1 |
*Lengd í km |
Ógnir
Affallsvatn frá Reykjanesvirkjun fellur til sjávar nyrst á svæðinu og hugsanleg mengun frá iðnaði.
Aðgerðir til verndar
Vernd vistgerða og gott eftirlit með iðnaði á svæðinu.
Núverandi vernd
Aðrar náttúruminjar | Númer |
---|---|
Reykjanes, Eldvörp og Hafnaberg | 106 |
Kortasjá
Útgáfudagsetning
5. apríl 2018, uppfært 26. maí 2020.