Skrúður
Skrúður
Svæðið er tilnefnt vegna fugla.
Skrúður
![Skrúður á Íslandskorti Skrúður á Íslandskorti](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/b-hluti_smakort_6004_skrudur_v01_0.jpg?itok=gHwxduWY)
![Skrúður Skrúður](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/sf-a_8-skrudur_ag.jpg?itok=6xGHf6f6)
Skrúður.
Mörk
Eyja úti fyrir Vattarnesi á milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar, ásamt 1 km verndarjaðri umhverfis.
Stærð
6,2 km2
Hlutfall lands: 3%
Hlutfall sjávar: 97%
Svæðislýsing
Brött og vel gróin klettaeyja. Lítils háttar eggjataka og lundaveiði.
Forsendur fyrir vali
Mikið fuglalíf er í Skrúði og má þar helst feiknastóra lundabyggð sem nær alþjóðlegum verndarviðmiðum ásamt langvíuvarpi.
Fuglar
Tegund | Árstími | Fjöldi (pör) | Ár | % af íslenskum stofni |
---|---|---|---|---|
Langvía | Varp | 11.483 | 2008 | 2 |
Lundi | Varp | 149.100 | 2014 | 7 |
Sjá einnig ítarlegri umfjöllun um sjófuglabyggðina Skrúður.
Ógnir
Nálæg skipaumferð og hlunnindanytjar.
Aðgerðir til verndar
Skrúður var friðlýstur árið 1995 ásamt 500 m belti umhverfis. Friðlýsingarskilmálar taldir viðunandi, nema stækka þarf verndarjaðar umhverfis eyjuna í 1-2 km. Styrkja búsvæðavernd í stjórnunar- og verndaráætlun.
Núverandi vernd
Friðlýst svæði | Flokkur friðlýsingar |
---|---|
Skrúður | Friðland |
Kortasjá
Útgáfudagsetning
5. apríl 2018, uppfært 26. maí 2020.