Tjörnes
Tjörnes
Svæðið er tilnefnt vegna fugla. Það er að hluta innan tillögusvæðisins Tjörnes, sem tilnefnt er vegna jarðminja.
Tjörnes
![Tjörnes á Íslandskorti Tjörnes á Íslandskorti](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/b-hluti_smakort_5010_tjornes_v01_0.jpg?itok=5thEiAX0)
![Héðinsvík á Tjörnesi Héðinsvík á Tjörnesi](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/fg-n_3-hedinsvik-tjornes_sk.jpg?itok=5XXmJ8wu)
Héðinsvík á Tjörnesi.
Mörk
Fjara og grunnsævi á vesturströnd Tjörness, frá Húsavíkurhöfða í suðri að Tjörnestá í norðri.
Stærð
6,4 km2
Hlutfall lands: <1%
Hlutfall fjöru: 24%
Hlutfall sjávar: 75%
Svæðislýsing
Með ströndinni skiptast á sand- og malarfjörur annars vegar og klapparfjörur hins vegar. Miklar þanghrannir safnast sums staðar fyrir í fjörum og sækja vaðfuglar mikið í þarabrúkið í ætisleit, einkum á vorin.
Forsendur fyrir vali
Fjörurnar eru mikilvægir viðkomustaðir farfugla og þær tegundir sem ná alþjóðlegum viðmiðum eru rauðbrystingur, sendlingur og tildra, ásamt straumönd sem óvenjumikið er af á veturna.
Fuglar
Tegund | Árstími | Fjöldi | Ár | % af íslenskum stofni |
---|---|---|---|---|
Straumönd | Vetur | 328 | 1999 | 2 |
Rauðbrystingur | Far | 5.225 | 2008 | 1 |
Sendlingur | Far | 1.113 | 2008 | 2 |
Tildra | Far | 1.445 | 2008 | 1 |
Sjá einnig ítarlegri umfjöllun um fjöru- og grunnsævissvæðið Tjörnes (Húsavíkurhöfði–Voladalstorfa).
Ógnir
Uppbygging stóriðju og skipaumferð.
Aðgerðir til verndar
Tryggja að fjörum og grunnsævi verði ekki raskað.
Núverandi vernd
Aðrar náttúruminjar | Númer |
---|---|
Bakkafjara og Bakkahöfði | 528 |
Tjörneslögin og Voladalstorfa | 530 |
Kortasjá
Útgáfudagsetning
5. apríl 2018, uppfært 26. maí 2020.