Vestmannsvatn
Vestmannsvatn
Svæðið er tilnefnt vegna fugla.
Vestmannsvatn
![Vestmannsvatn á Íslandskorti Vestmannsvatn á Íslandskorti](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/b-hluti_smakort_5007_vestmannsvatn_v01_0.jpg?itok=6cKqytPO)
![Vestmannsvatn í Aðaldal Vestmannsvatn í Aðaldal](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/vot-n_9-vestmannsvatn_yk.jpg?itok=8FZYOWSQ)
Vestmannsvatn.
Mörk
Vestmannsvatn ásamt nálægum vötnum og tjörnum umhverfis.
Stærð
5,7 km2
Hlutfall lands: 56%
Hlutfall fersks vatns: 44%
Svæðislýsing
Frekar grunn, gróðurmikil og næringarrík vötn, tjarnir og flæðilönd. Graslendi og mólendi þar sem þurrara er og birkiskógur austan Vestmannsvatns. Landbúnaður er stundaður á svæðinu og eins silungsveiði, aðallega bleikja og urriði en einnig lax. Nokkur frístundabyggð.
Forsendur fyrir vali
Mikið og fjölbreytt fuglalíf og nær flórgoði alþjóðlegum verndarviðmiðum.
Fuglar
Tegund | Árstími | Fjöldi (pör) | Ár | % af íslenskum stofni |
---|---|---|---|---|
Flórgoði | Varp | 18 | 2004 | 3 |
Sjá einnig ítarlegri umfjöllun um fuglasvæðið Vestmannsvatn og nágrenni.
Ógnir
Aukin frístundabyggð og ferðamennska, silungsveiðar og skógrækt.
Aðgerðir til verndar
Svæðið hefur verið friðað frá 1977 og eru núverandi friðlýsingarskilmálar taldir fullnægjandi. Styrkja þarf vernd búsvæða í stjórnunar- og verndaráætlun. Stýra þarf umferð ferðafólks og veiðimanna, sérstaklega á viðkvæmum tímum fyrir dýralíf s.s. á varptíma.
Núverandi vernd
Friðlýst svæði | Flokkur friðlýsingar |
---|---|
Vestmannsvatn | Friðland |
Kortasjá
Útgáfudagsetning
5. apríl 2018, uppfært 26. maí 2020.