Önundarfjörður
Önundarfjörður
Svæðið er tilnefnd vegna vistgerða á landi.
Önundarfjörður
![Önundarfjörður á Íslandskorti Önundarfjörður á Íslandskorti](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/b-hluti_smakort_3005_onundarfjordur_v01_0.jpg?itok=-fT1WMGS)
![Önundarfjörður Önundarfjörður](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/onundarfjordur-bm.jpg?itok=m1VybjYA)
Úr Önundarfirði.
Mörk
Önundarfjörður innan Holtstanga að vegi innan fjarðarbotns, milli Vífilsmýrar og Korpudals. Mörk til landsins fylgja að mestu þjóðvegi við brekkurætur að norðan og sunnan.
Stærð
6,9 km2
Hlutfall lands: 47%
Hlutfall fjöru: 52%
Hlutfall sjávar: <1%
Hlutfall fersks vatns: <1%
Svæðislýsing
Fjölbreytt grunnsævi, sjávarflæður, leirur og fitjar ásamt aðliggjandi mýrum og þurrlendi er ofar liggur. Land er heillegt og fremur lítið raskað, nema á vestasta hluta sunnan fjarðar. Auðugt fuglalíf og er fjöldi vaðfugla á svæðinu á fartíma. Landbúnaður er stundaður á svæðinu og þar er eftirsótt beitiland af sauðfé og fuglum, æðarrækt og ferðaþjónusta er stunduð á jöðrum svæðisins.
Forsendur fyrir vali
Frjósamt flæðiland í fjarðarbotni, víðáttumikil sjávarfitjungsvist á vesturhluta svæðisins en gulastararfitjavist tekur við á austurhlutanum, eru það forgangsvistgerðir svæðisins. Fitjasvæðið er víðáttumikið og er eitthvert það heillegasta á landinu. Af öðrum vistgerðum má nefna starungsmýravist og runnamýravist.
Vistgerðir
Vistgerð | Km2 | % af heildarflatarmáli | |
---|---|---|---|
Land | Gulstararfitjavist | 0,64 | 8 |
Land | Sjávarfitjungsvist | 0,36 | 2 |
Ógnir
Vegagerð, ysta hluta svæðisins hefur þegar verið raskað með þverun fjarðar. Framræsla og búfjárbeit, einkum hrossa.
Aðgerðir til verndar
Stilla beitarálagi í hóf, nýframræsla verði ekki, endurheimta votlendi þar sem land er ekki lengur nytjað.
Núverandi vernd
Aðrar náttúruminjar | Númer |
---|---|
Holtsengi og Vöð í Önundarfirði | 314 |
Kortasjá
Útgáfudagsetning
5. apríl 2018, uppfært 26. maí 2020.