1. nóvember 2017. Halldór Björnsson: Loftslagsbreytingar á Íslandi, staðan og horfur
1. nóvember 2017. Halldór Björnsson: Loftslagsbreytingar á Íslandi, staðan og horfur
1. nóvember 2017. Halldór Björnsson: Loftslagsbreytingar á Íslandi, staðan og horfur
![Halldór Björnsson Halldór Björnsson](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/halldor_bjornsson.jpg?itok=4S6rqdYd)
Halldór Björnsson.
Halldór Björnsson hópstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands flytur erindið „Loftslagsbreytingar á Íslandi, staðan og horfur“ á Hrafnaþingi miðvikudaginn 1. nóvember kl. 15:15.
Vísindanefnd um loftslagsbreytingar hefur starfað frá haustinu 2015 og gert er ráð fyrir að skýrsla nefndarinnar verði tilbúinn fyrir árslok. Í þessu erindi verður fjallað um hluta skýrslunnar, það er þær veðurfarsbreytingar sem orðið hafa á Íslandi og áhrif þeirra á jökla og afrennsli, landris og sjávarstöðu. Einnig verður fjallað um framreikninga á líklegum áhrifum hnattrænna loftslagsbreytinga á íslenska veðráttu og líklegar breytingar á sjávarstöðu.
![](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/endurgreiningsumar.jpg?itok=MxUA-8Ge)