Flatlendisvötn
Flatlendisvötn
V1.1
EUNIS-flokkun
Mjúkbotn – Profundal: C1.13 Rooted floating vegetation of oligotrophic waterbodies; fjörubelti – littoral zone: C3.2 Water-fringing reedbeds and tall helophytes other than canes.
Flatlendisvötn
![Flatlendisvötn Flatlendisvötn](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/flatlendisvotn-hofgardatjorn.jpg?itok=MMNNDhc6)
Tjarnablaðka í Hofgarðatjörn á Snæfellsnesi. – Persicaria amphibia in pond at Snæfellsnes peninsula, western Iceland.
![Flatlendisvötn Flatlendisvötn](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/flatlendisvotn-ferjubakkafloi.jpg?itok=e7jvQGQ-)
Gulstör og vatnsnál í Hópi, Ferjubakkaflóa í Borgarfirði. – Carex lyngbyei and Eleocharis palustris in a lake in western Iceland. Borgarfjörður.
Lýsing
Fremur lítil vötn á grónu flatlendi. Vatnasvið er yfirleitt vel gróið. Vatnsbakkar eru vel grónir og grýtt strandlengja er sjaldan til staðar. Vötnin eru mjög grunn (<2 m) og vatnsskálin nokkuð jafndjúp. Loftgróður (plöntur sem vaxa upp úr vatninu), er áberandi við bakka.
Vatnagróður
Þekja vatnagróðurs er oftast mikil í vötnunum og margar tegundir koma fyrir. Einkennistegundir eru síkjamari, þráðnykra, grasnykra, gulstör og tjarnastör (Carex rostrata). Loftgróður, t.d. vatnsnál, lófótur (Hippuris vulgaris), fergin (Equisetum fluviatile) og horblaðka (Menyanthes trifoliata), kemur frekar fyrir í þessari vistgerð en öðrum. Sverðnykra (Potamogeton compressus) og tjarnablaðka (Persicaria amphibia) fundust aðeins í þessari vistgerð. Kransþörungar koma fyrir.
Botngerð
Mjúkt vatnaset þekur allan botninn, grýtt fjörubelti meðfram bökkum er yfirleitt ekki til staðar.
Efnafræðilegir þættir
Vötnin eru oftast næringarefnasnauð, mörg þeirra eru þó ríkari af næringarefnum (fosfór og nitri) en önnur vötn. Sýrustig (pH) mælist hærra en í öðrum vistgerðum og sömuleiðis rafleiðni, að undanskildum grunnu hálendisvötnunum þar sem rafleiðni mældist lægri en í öðrum flatlendisvötnum.
Miðlunargerð vatnasviðs
Mýravötn á láglendi (3500), jarðvegsmiðlun á láglendi (3400) og votlendismiðlun á hálendi (3100). Aðrar miðlunargerðir koma fyrir.
Fuglar
Fuglaríkustu vötn landsins. Endur eru einkennandi, t.d. skúfönd (Aythya fuligula) og duggönd (A. marila), og sums staðar flórgoðar (Podiceps auritus).
Útbreiðsla
Finnst víða um land, yfirleitt á láglendi, í að meðaltali um 120 m h.y.s. Nær einnig til grunnra vatna á grónum votlendissvæðum á hálendi.
Verndargildi
Mjög hátt. Vistgerðin er á lista Bernarsamningsins frá 2014 yfir vistgerðir sem þarfnast verndar.
![Útbreiðslukort flatlendisvötn Útbreiðslukort flatlendisvötn](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/kort_v1.1_flatlendisvotn.jpg?itok=b466N5PG)
Útbreiðsla flatlendisvatna. Flatarmál er um 220 km2, sem er um 12% af heildarflatarmáli stöðuvatna. Vistgerðina er helst finna í Ölfusi til Austur-Landeyja, á Mýrum, Holtavörðuheiði og Arnarvatnsheiði. – Oligotrophic waterbodies with rooted floating vegetation are located mostly in the lowlands but are also found in wetland areas in the highlands. Their total area is estimated 220 km2 (12% of Icelandic lakes).
Algengustu tegundir gróðurs – Most common vegetation species | % | |
---|---|---|
Síkjamari | Myriophyllum alterniflorum | 96 |
Þráðnykra | Stuckenia filiformis | 92 |
Grasnykra | Potamogeton gramineus | 67 |
Flagasóley | Ranunculus reptans | 50 |
Gulstör | Carex lyngbyei | 42 |
Hjartanykra | Potamogeton perfoliatus | 42 |
Lónasóley | Batrachium eradicatum | 38 |
Vatnsnál | Eleocharis palustris | 29 |
Fjallnykra | Potamogeton alpinus | 25 |
Smánykra | Potamogeton berchtoldii | 25 |
![Mælingar í ferskvatnsvistgerðum, tegundarík kransþörungavötn Mælingar í ferskvatnsvistgerðum, tegundarík kransþörungavötn](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/graf_v1.3a_tegundarikkransthorungavotn.jpg?itok=AhTWSdim)
Fjöldi æðplantna, mosa og kransþörunga sem fundust í vistgerðinni. Súlur sýna spönn allra vistgerða og svarta þverstrikið sýnir fjölda tegunda innan vistgerðarinnar samanborið við spönnina. Talan sem er í sviga efst í hægra horninu táknar fjölda vatna innan vistgerðarinnar. – Species richness of vascular plants, bryophytes and Charales, n within brackets; bars indicate range for all habitat types.
![Mælingar í ferskvatnsvistgerðum, flatlendisvötn Mælingar í ferskvatnsvistgerðum, flatlendisvötn](http://gamall.ni.is/sites/default/files/styles/paragraphs_medium/public/thumbnails/image/graf_v1.1b_flatlendisvotn.jpg?itok=BxqcPoaw)
Meðaldýpi; meðalþekja vatnagróðurs; sýrustig (pH); rafleiðni (ávallt leiðrétt fyrir 25°C); fosfór (P); nitur (N) og blaðgræna í vistgerðinni. Súlur sýna meðaltal ± staðalfrávik (lóðrétt strik), einnig spönn viðkomandi breytu fyrir allar vistgerðir og því hægt að bera saman vistgerðina við heildarspönn allra vistgerða. – Average depth (m), average vegetation cover (%), pH, specific conductivity (μS/cm), Total-P (mg/l), Total-N (mg/l) and chlorophyll a (μg/l) shown with lines and numbers ± standard deviation, n within brackets. Bar indicates range for all habitat types.