Útbreiðsla
Skúfönd verpur í Evrópu og Asíu til Kyrrahafs. Hún er farfugl að langmestu leyti en nokkur hundruð fugla halda til hér á vetrum, einkum á lindasvæðum suðvestanlands.
Stofn
Skúfönd er hér algeng og útbreidd en þó langalgengust á Mývatni. Íslenski stofninn er gróflega metinn 8.000−12.000 pör og þá gert ráð fyrir að 50−67% fuglanna verpi við Mývatn en 5.000−10.000 steggir sáust þar vorin 2005−2015 (Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn, óbirt gögn). Um 700−1.400 steggir sáust á öðrum vatnasvæðum í Þingeyjarsýslu á sama tíma (Yann Kolbeinsson o.fl. 2016) og fjölgaði fuglunum nokkuð samfellt á báðum talningarsvæðunum.
Válisti
LC (ekki í hættu)
Ísland |
Evrópuválisti |
Heimsválisti |
---|
LC |
LC |
LC |
Forsendur flokkunar
Kynslóðalengd (IUCN): 7,3 ár
Tímabil sem mat miðast við (3 kynslóðir): 22 ár.
Skúföndin er það algeng og stofnþróun með þeim hætti að hún er ekki talinn vera í hættu (LC).
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2000: Skúfönd var ekki í hættu (LC).
Verndun
Skúfönd er friðuð samkvæmt lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.
Á takmörkuðum svæðum, þar sem andarvarp er mikið, skal veiðirétthafa heimilt að taka egg frá skúfönd. Við slíka eggjatöku skulu ávallt skilin eftir minnst fjögur egg í hverju hreiðri. Eggin má hvorki bjóða til sölu, selja, kaupa, gefa né þiggja að gjöf.
Samkvæmt reglugerð 456/1994 er heimilt er að veiða skúfönd frá 1. september til 15. mars.
Mikilvæg svæði
Mývatn hefur undanfarinn áratug talist alþjóðlega mikilvægt svæði fyrir skúfönd (sjá töflu).
IBA viðmið – IBA criteria:
A4 i: Evrópa = 13.500 fuglar/birds; 4.500 pör/pairs (Wetlands International 2016)
B1 i: NV-Evrópa = 9.000 fuglar/birds; 3.000 pör/pairs (Wetlands International 2016)
Töflur
Skúfandarvarp á mikilvægum fuglasvæðum á Íslandi – Breeding Aythya fuligula in important bird areas in Iceland.
Svæði Area |
Svæðisnúmer Area code |
Árstími Season |
Fjöldi (pör) Number (pairs) |
Ár Year |
% af íslenskum stofni % of Icelandic popul. |
Alþjóðlegt mikilvægi International importance |
---|
Vestmannsvatn1 |
VOT-N_9 |
B |
359 |
2016 |
3,6 |
|
Mývatn–Laxá2 |
VOT-N_11 |
B |
7.056 |
2006–2015 |
70,6 |
A4i, B1i |
Öxarfjörður1 |
VOT-N_12 |
B |
707 |
2016 |
7,1 |
|
Úthérað3 |
VOT-A_3 |
B |
175 |
2000 |
1,8 |
|
Alls–Total |
|
|
8.297 |
|
83,0 |
|
1Náttúrustofa Norðausturlands, óbirt gögn/unpubl. data 2Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn, óbirt gögn/unpubl. data 3Guðmundur A. Guðmundsson o.fl. 2001 |
English summary
The Aythya fuligula population in Iceland is roughly estimated 8,000‒12,000 pairs with approximately 70% breeding at Lake Mývatn, a designated IBA for this species.
Icelandic Red list 2018: Least concern (LC) as in 2000.
Heimildir
Guðmundur A. Guðmundsson, Guðmundur Guðjónsson, Sigurður H. Magnússon, Kristbjörn Egilsson, Halldór Walter Stefánsson og Kristinn Haukur Skarphéðinsson 2001. Kárahnjúkavirkjun: áhrif breytinga á vatnafari Jökulsár á Dal og Lagarfljóts á gróður, fugla og seli. Náttúrufræðistofnun Íslands, NÍ-01005. Reykjavík: Náttúrufræðistofnun Íslands.
Wetlands International 2016. Waterbird Population Estimates. http://wpe.wetlands.org/search[skoðað 26. nóvember 2016].
Yann Kolbeinsson, Aðalsteinn Örn Snæþórsson og Þorkell Lindberg Þórarinsson 2016. Fuglavöktun í Þingeyjarsýslum 2015. Náttúrustofa Norðausturlands, NNA-1603. Húsavík: Náttúrustofa Norðausturlands.
Höfundur
Kristinn Haukur Skarphéðinsson maí 2017, október 2018
Was the content helpful
Back to top