Undirritun samkomulags um aukna samvinnu milli Samnings um líffræðilega fjölbreytni (CBD) og Bernarsamningsins
29.05.2008
Á níunda aðildarríkjafundi Samnings um líffræðilega fjölbreytni (CBD) sem haldinn var í Bonn dagana 19. til 30. maí var samkomulag um aukna samvinnu milli CBD og Bernarsamningsins undirritað. Bernarsamningurinn er einn helsti samningur Evrópu á sviði náttúruverndar og undirstaða náttúruverndarlöggjafar margra Evrópuþjóða. Öll 47 aðildarríki Bernarsamningsins eru jafnframt aðilar að CBD, sem hefur 191 aðildarríki. Aukin samvinna þessara aðila gerir þeim betur kleift að takast á við nýjar áskoranir og verkefni, svo sem loftslagsbreytingar, í viðleitni sinni til að ná settum markmiðum og stöðva rýrnun líffræðilegrar fjölbreytni.
![](/sites/ni.is/files/thumbnails/image/samkomulag.jpg)
Jón Gunnar Ottósson (fyrir miðju), forseti Bernarsamningsins og forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands, er hér ásamt Ahmed Djoghlaf (t.h.), framkvæmdastjóra (Executive Secretary) Samningsins um líffræðilega fjölbreytni, og Eladio Fernandez-Galiano, deildarstjóra deildar um líffræðilega fjölbreytni hjá Evrópuráðinu, við undirritun samkomulags um aukna samvinnu, 23. maí 2008.
Nánari upplýsingar um samkomulagið má nálgast hér.