Picture: Daníel Bergmann
Kort 1: Þéttleiki himbrimavarps á Íslandi er mestur á dekkstu svæðunum – The density of Gavia immer breeding sites/territories in Iceland is highest in the darkest shaded areas.
Kort 2: Meðaltal himbrima á 10 km strandlengju í vetrarfuglatalningum Náttúrufræðistofnunar Íslands 1952−2014 – Winter distribution of Gavia immer in mid-winter counts 1952−2014. Numbers indicate mean number of birds per 10 km coastline or at each inland site.
Útbreiðsla
Himbrimi er varpfugl í Norður-Ameríku, en einnig á Grænlandi og Íslandi. Auk þess koma hingað vetrar- og jafnvel fargestir frá Grænlandi (Finnur Guðmundsson 1972).
Stofn
Himbrimi er sjaldgæfur varpfugl hér á landi og hefur stofninn verið gróflega metinn 200−300 pör (Náttúrufræðistofnun Íslands 2000). Væntanlega er stofninn nú nokkuð stærri, enda eru þekktir varpstaðir og/eða óðul um 500 talsins og er varpið þéttast á Mýrum, heiðunum upp af Dölum, í Húnavatnssýslu og Borgarfirði, á Skaga, Norður-Sléttu, í grennd við Mývatn og í Veiðivötnum (sjá kort 1). Himbrimi er sennilega farfugl að einhverju leyti en hann sést allt í kringum land á vetrum (sjá kort 2).
Á haustin safnast himbrimar sums staðar í hópa, stundum tugum saman eins og á Reyðarvatni ofan Lundarreykjadals, Hlíðarvatni í Hnappadal, Þiðriksvallavatni í Steingrímsfirði og á Mývatni, þar sem þeir hópast reyndar líka á vorin. Mest er um himbrima á Þingvallavatni á haustin og hafa sést þar allt að 200 fuglar samtímis (Kjartan G. Magnússon og Páll Hersteinsson 2002). Um nokkurt skeið frá um 1980 og fram yfir 1990 hópuðust himbrimar saman á sjónum sunnan við Hafnir á Reykjanesskaga og sáust flestir 160 fuglar í vetrarfuglatalningum Náttúrufræðistofnunar.
Válisti
VU (í nokkurri hættu)
Ísland |
Evrópuválisti |
Heimsválisti |
---|
VU |
VU |
LC |
Forsendur flokkunar
Kynslóðalengd (IUCN): 9,8 ár
Tímabil sem mat miðast við (3 kynslóðir): 1988–2017
Íslenski himbrimastofninn er fáliðaður (<1.000 kynþroska fuglar) og flokkast því sem tegund í nokkurri hættu (VU, D1).
Viðmið IUCN: D
D. Stofn mjög lítill eða takmarkaður.
1. Stofn talinn vera minni en 1000 kynþroska einstaklingar.
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2000: Himbrimi var flokkaður sem tegund í hættu (EN).
Verndun
Himbrimi er friðaður samkvæmt lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.
Mikilvæg svæði
Himbrima hefur fækkað á vetrarstöðvum í Evrópu og er hann þar á válista sem tegund í nokkurri hættu (VU; BirdLife International 2015). Vísitölur vetrarfuglatalninga Náttúrufræðistofnunar benda til hægfara fjölgunar hér við land undanfarna áratugi.
Um 10 varpsvæði hér eru alþjóðlega mikilvæg fyrir himbrima (sjá töflu 1) og einn viðkomustaður á haustin (Þingvallavatn; sjá töflu 2). Ekki er vitað um neinar mikilvægar vetrarstöðvar en himbrimi sést allt í kringum land á þeim árstíma (sjá kort 2).
IBA viðmið – IBA criteria:
A4 i: Evrópa (vetrarstofn/winter) = 50 fuglar/birds; 17 pör/pairs (Wetlands International 2016)
B1 i: A4 i
Töflur
Tafla 1: Himbrimavarp á mikilvægum fuglasvæðum á Íslandi – Breeding Gavia immer in important bird areas in Iceland.*
Svæði Area |
Svæðisnúmer Area code |
Árstími Season |
Fjöldi (óðul) Number (territories) |
Ár Year |
% af íslenskum stofni % of Icelandic popul. |
Alþjóðlegt mikilvægi International importance |
---|
Borgarfjörður–Löngufjörur |
FG-V_10 |
B |
22 |
2016 |
4,4 |
A4i, B1i, B2 |
Laxárdalsheiði |
VOT-V_3 |
B |
25 |
2016 |
5,0 |
A4i, B1i, B2 |
Arnarvatnsheiði |
VOT-N_1 |
B |
75 |
2016 |
15,0 |
A4i, B1i, B2 |
Víðidalstunguheiði–Blanda |
VOT-N_2 |
B |
16 |
2016 |
3,2 |
B2 |
Skagi |
VOT-N_5 |
B |
40 |
2016 |
8,0 |
A4i, B1i, B2 |
Mývatn–Laxá |
VOT-N_11 |
B |
13 |
2016 |
2,6 |
B2 |
Melrakkaslétta |
FG-N_4 |
B |
16 |
2016 |
3,2 |
B2 |
Jökuldalsheiði |
VOT-A_2 |
B |
8 |
2016 |
1,6 |
|
Úthérað |
VOT-A_3 |
B |
9 |
2016 |
1,8 |
|
Veiðivötn1 |
VOT-S_2 |
B |
19 |
2016 |
3,8 |
B2 |
Suðurlandsundirlendi |
VOT-S_3 |
B |
11 |
2016 |
2,2 |
B2 |
Sogið–Þingvallavatn |
VOT-S_6 |
B |
10 |
2016 |
2,0 |
B2 |
Önnur mikilvæg svæði Other important areas |
|
B |
15 |
2016 |
3,0 |
|
Alls–Total |
|
|
279 |
|
55,8 |
|
*byggt á Náttúrufræðistofnun Íslands, óbirt gögn 1Örn Óskarsson, pers. uppl./pers. com. |
Tafla 2: Mikilvægur viðkomustaður himbrima á haustin – Important autumn staging area of Gavia immer in Iceland.*
English summary
The Gavia immer population in Iceland is roughly estimated 200–300 pairs. Known breeding territories are c. 500, with 56% within IBAs, ten of which are specifically designated for this species. Furthermore, one staging area is designated IBA, holding 10% and sometimes 30% of the population.
Icelandic Red list 2018: Vulnerable (VU, D1), downlisted from EN in 2000.
Heimildir
Birdlife International 2015. European red list of birds. Luxembourg: Official publication of the European communities. http://datazone.birdlife.org/userfiles/file/Species/erlob/EuropeanRedListOfBirds_June2015.pdf [skoðað 20.10.2016].
Finnur Guðmundsson. 1972. Grit as an indicator of the overseas origin of certain birds occurring in Iceland. Ibis 114: 582.
Kjartan G. Magnússon og Páll Hersteinsson 2002. Fuglar og spendýr á vatnasviði Þingvallavatns. Í Pétur M. Jónasson og Páll Hersteinsson, ritstj. Þingvallavatn: undraheimur í mótun, bls. 97–187. Mál og Menning: Reykjavík.
Náttúrufræðistofnun Íslands 2000. Válisti 2: fuglar. Reykjavík: Náttúrufræðistofnun Íslands.
Wetlands International 2016. Waterbird Population Estimates. http://wpe.wetlands.org/search[skoðað 26. nóvember 2016].
Höfundur
Kristinn Haukur Skarphéðinsson maí 2017, júní 2018, október 2018
Was the content helpful
Back to top